Það mun gerast
„Við gerum það fljótlega. Það mun gerast,“ sagði hún aðspurð um tónleikaferðalag. Eftir að platan kom út á miðnætti gaf hún út aðra útgáfu af plötunni þremur klukkustundum síðar, með sjö auka lögum. Ætla má að þau lög fái einnig að óma á komandi tónleikum. Í viðtalinu sagði hún að tónleikaferðalagið verði stórkostlegt þegar þar að kemur.
Í viðtalinu sagðist hún vera gríðarlega þakklát aðdáendum sínum fyrir viðtökurnar á plötunni.
Midnights is a wild ride of an album and I couldn t be happier that my co pilot on this adventure was @jackantonoff. He s my friend for life (presumptuous I know but I stand by it) and we ve been making music together for nearly a decade HOWEVER https://t.co/jjqUNkGSme pic.twitter.com/v7LboJJ9Ik
— Taylor Swift (@taylorswift13) October 21, 2022
Laura Dern illa stjúpmóðirin
Taylor hefur nú þegar gefið út tvö myndbönd fyrir lög af plötunni sem hafa vakið mikið umtal. Í öðru þeirra, fyrir lagið Bejeweled, fara stjörnurnar Laura Dern, Haim systurnar og Dita Von Teese með hlutverk. Þema myndbandsins er Öskubuska þar sem söngkonan sjálf leikur aðalpersónuna.
Breytti Anti-Hero myndbandinu
Hitt lagið sem er komið með tónlistarmyndband er Anti-Hero. Taylor skrifaði það sjálf og leikstýrði. Eftir að myndbandið kom út varð eitt atriði þess umdeilt.
Myndbrotið sem um ræðir sýndi söngkonuna stíga upp á vigt og talan sem kom upp á vigtinni var einfaldlega „Feit.“ Netverjar sögðu orðin á vigtinni ýta undir fitufordóma þar sem hún hafði sagt að þema myndbandsins væru hennar matraðahugsanir.
Söngkonan hefur áður opnað sig um það að hafa átt erfitt samband við mat í fortíðinni og í heimildarmyndinni Miss Americana talaði hún um að hafa svelt sig á ákveðnum tíma í lífinu.
Taylor hlustaði á gagnrýnis raddirnar sem töldu það ýta undir fitufordóma að það væri martröð að fá orðið feit upp á vigt. Nú hefur atriðinu verið breytt þar sem engin tala eða niðurstaða er sýnd. Leikkonan Whoopy Goldberg kom Taylor þó til varnar og sagði að söngkonan mætti hafa sínar tilfinningar og sinn ótta.