Tónleikastaðirnir eru því heimilisföng skagamanna, líkt og sjá má hér að neðan:
- Vesturgata 71b (Einar Skúla)
- Vitateig 2 (Martha og Björn),
- Skólabraut 20 (Guðni og Lilja)
- Grundartún 8 (Elfa og Pálmi)
- Báran brugghús (Bárugötu X)
- Bíóhöllin (Vesturgötu 27)
- Akraneskirkja (Skólabraut 13)
- Gamli Iðnskólinn (Skólabraut X)
- Blikksmiðja Guðmundar (Akursbraut 11b)
- Rakarastofa Hinna (sem er líkast til í minnsta húsi Akraness og þó víðar væri leitað)

Þar sem um heimahús er að ræða er nándin við listafólkið mikil. Þeir sem koma fram eru Lay Low, Hörður Torfa, Vintage Caravan, Una Torfa, Guðrún Gunnars, Tíbrá, Júníus Meyvant, Herbert, DJÄSS og Guðrún Árný.
Listafólkið kemur ekki fram á sama tíma svo þeir sem eru duglegastir að rölta á milli heimila sjá flest atriði. Þeir fyrstu stíga á stokk kl. 20.00 og þeir síðustu enda um kl. 23.00. Þá tekur við hálfgert eftirpartý þar sem Guðrún Árný heldur utan um samsöng.
