„Menn voru að velta fyrir sér að nota þyrlu en það var ekki hægt, það var svo lélegt skyggni. Menn féllu frá því, enda held ég að þyrlan hefði bara feykt þeim niður,“ rifjar ljósmyndarinn upp í nýjasta þættinum af RAX Augnablik.
Hestarnir fundust ekki fyrr en þremur dögum seinna, í sjálfheldu á klettasillu uppi á fjallinu Skarðshyrnu. Í leitarhópnum var meðal annars dýralæknir sem hafði mjög ákveðið hlutverk í þessum leitarleiðangri.
Hér fyrir neðan má heyra frásögnina í heild sinni.
Í þáttunum RAX Augnablik segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+.
Hægt er að sjá alla þættina hér á Vísi.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fjallað er um dýr í háska í þáttunum RAX Augnablik. Þrjár vinsælar frásagnir má sjá hér fyrir neðan.
Hundarnir í sjónum
Í einni af ferðum sínum til Grænalands náði Ragnar mynd af sleðahundum sem féllu í sjóinn í gegnum sprungu á hafísnum. Hann var svo spenntur að ná myndinni að hann féll sjálfur ofan í sprunguna.
Vægðarlaus veröld sleðahundanna
Veiðimenn Grænlands eiga sleðahundunum að mörgu leyti líf sitt að launa. En veruleiki sleðahundanna er enginn barnaleikur eins og Ragnar kynntist af eigin raun.
Hreindýahirðingjarnir á túndrunni
Til þess að mynda líf hreindýrahirðingja í Síberíu þurfti Ragnar að fara eftir nokkrum krókaleiðum og fá boð til nærliggjandi borgar í gegnum vin sinn sem vinnur sem gas-vísindamaður. Helsta hættan sem steðjar að hreindýrunum leynist í frosinni jörðinni.