Jesus undir hnífinn og frá keppni næstu mánuðina Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 7. desember 2022 08:01 Gabriel Jesus þurfti að fara í aðgerð vegna meiðslanna sem hann varð fyrir gegn Kamerún. Marc Atkins/Getty Images Gabriel Jesus, framherji Brasilíu og Arsenal, verður frá keppni í dágóða stund vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik gegn Kamerún.
Hinn 25 ára gamli framherji var í byrjunarliði Brasilíu sem tapaði óvænt 1-0 fyrir Kamerún í lokaleik riðlakeppninnar á heimsmeistaramótinu í fótbolta sem nú fer fram í Katar. Hann fór meiddur af velli eftir rúmlega klukkustund en upphaflega var talið var að hann yrði frá í 4-6 vikur vegna meiðslanna. Sky Sports hefur nú greint frá því að framherjinn duglegi hafi þurft að fara undir hnífinn og hefur þegar hafið endurhæfingu. Arsenal vill ekki gefa upp hversu lengi hann verður frá keppni en talið er að um þrjá mánuði hið minnsta sé að ræða. Það er því gefið að Jesus leikur ekki meira með Brasilíu á HM og þá mun hann missa af mikilvægum leikjum Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. Skytturnar hefja leik að nýju strax á annan í jólum þegar West Ham United kemur í heimsókn. Jesus gekk í raðir Arsenal síðasta sumar og er stór ástæða þess að liðið trónir á toppi deildarinnar með fimm stiga forskot enda hefur hann byrjað alla deildarleiki liðsins til þessa. Nú þarf Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, að finna annan leikmann til að leiða línuna þar sem Jesus verður fjarri góðu gamni næstu mánuði.
Fótbolti Enski boltinn Tengdar fréttir Verður Gabriel Jesus frá næstu þrjá mánuðina? Brasilískir fjölmiðlar greina frá því að Gabriel Jesus leikmaður Arsenal þurfi að fara í aðgerð og verði frá næstu þrjá mánuðina. Jesus meiddist á hné í leik Brasilíu og Kamerún á heimsmeistaramótinu í Katar. 4. desember 2022 11:31 Gabriel Jesus ekki meira með í Katar Brasilíski framherjinn Gabriel Jesus verður ekki meira með á heimsmeistaramótinu í Katar vegna meiðsla. Jesus meiddist á hné gegn Kamerún í gær og leikur vafi á því hvort hann verði klár í slaginn þegar enska úrvalsdeildin hefst á ný í lok mánaðarins. 3. desember 2022 13:56 Mest lesið Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn „Fyrr skal ég dauður liggja“ Enski boltinn „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Körfubolti Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ Körfubolti Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Körfubolti Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Íslenski boltinn „Ómetanlegar“ minningar Nelson feðga Sport „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ Fótbolti Fleiri fréttir „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Chelsea skrapaði botninn með Southampton Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Sjá meira
Verður Gabriel Jesus frá næstu þrjá mánuðina? Brasilískir fjölmiðlar greina frá því að Gabriel Jesus leikmaður Arsenal þurfi að fara í aðgerð og verði frá næstu þrjá mánuðina. Jesus meiddist á hné í leik Brasilíu og Kamerún á heimsmeistaramótinu í Katar. 4. desember 2022 11:31
Gabriel Jesus ekki meira með í Katar Brasilíski framherjinn Gabriel Jesus verður ekki meira með á heimsmeistaramótinu í Katar vegna meiðsla. Jesus meiddist á hné gegn Kamerún í gær og leikur vafi á því hvort hann verði klár í slaginn þegar enska úrvalsdeildin hefst á ný í lok mánaðarins. 3. desember 2022 13:56