Skoðun

Mannúð í anda jólanna

Inga Sæland skrifar

Til hamingju elsku öryrkjar sem fáið nú viðbótar desemberuppbót skatta og skerðingalausa fyrir jólin. Ég þekki af eigin raun hversu það er sárt að vera algjörlega vanmáttugur gagnvart fátæktinni sem þúsundir mega þola í boði ríkisstjórnarinnar án þess að fá rönd við reist.

Því er það mér afar erfitt að tala um meðferð þingmanna meirihlutans á sárafætæku eldra fólki sem hefur ekkert annað lífsviðurværi en berstrípaðar greiðslur Tryggingastofnunar ríkisins. Þrívegis fengu þau tækifæri til að taka utan um þennan fámenna hóp og rétta þeim hjálparhönd fyrir jólin. Þrívegis sögðu þau NEI!

Í atkvæðaskýringum með síðustu breytingatillögu minni um málið, þar sem ég óskaði eftir 126 milljónum króna til 2080 bláfætækra í sárri neyð kom félags og vinnumarkaðsmálaráðherra í atkvæðaskýringar. Hann sagði meðal annars:

„Ég skil auðvitað líkt og önnur hér, viljann til þess að mæta hópi þess eldra fólks sem lökust hafa kjörin nú í desember en sú tillaga sem hv. þm. Inga Sæland hefur ítrekað lagt fram hefur verið óskýr og lagalega ótæk að mínu viti, þó svo að hún hafi vissulega skánað eftir því sem á líður.“

Ef þetta er skilningur hæstvirts ráðherra á einföldustu breytingatillögu þingvetrarins þá hvet ég hann til að hugsa sinn gang. Hugsanlega eitthvað annað starf sem hentar honum betur.

Ráðherrann lét ekki þar við sitja og hélt ótrauður áfram að freista þess að réttlæta mannvonskuna sem augljóslega felst í því að segja NEI!

„En burt séð frá þessu þá vara ég við því að setja plástra á ellilífeyriskerfinu sem var einfaldað og bætt fyrir nokkrum árum og sem leiddi til kjarabóta fyrir eldra fólk.“

Hvers vegna er Flokkur fólksins að kalla eftir plástri? Liggur það ekki í augum uppi að það er vegna þess að þessu fólki blæðir. Gamalt fólk sem á hvergi höfði sínu að halla þarf á fjárhagslegum stuðningi að halda. Ekki seinna, heldur núna.

Enn fremur kemur fram hjá ráðherranum að nú sé nefnd að störfum undir forystu ráðuneytis hans sem fjallar einmitt um stöðu þess hluta ellilífeyrisþega sem lökust hafa kjörin og telur hann farsælla að sú nefnd fjalli um það sem hér er til umfjöllunar.

Mér er ofboðið. Hvernig í veröldinni á það að hjálpa fólki í neyð fyrir jólin að ráðherrann sé að vinna með málið í nefnd? Ég á einfalt svar við því. Eldra fólk í sárri neyð fyrir jólin græðir ekkert á því að verið sé að fjalla um málið í nefnd næstu árin.

Að lokum vil ég þakka ykkur öllum fyrir hlýju ykkar og stuðning við Flokk fólksins. Við munum alltaf setja fólkið í fyrsta sæti

Gleðileg jól

Höfundur er formaður Flokks fólksins.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×