KSÍ mun ekki styðja Infantino til endurkjörs Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. desember 2022 17:31 Gianni Infantino, forseti FIFA. Alex Livesey - Danehouse/Getty Images Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, mun ekki styðja við framboð Gianni Infantino til endurkjörs sem forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA.
Þetta kom fram á stjórnarfundi sambandsins sem hanldinn var á Selfossi þann 8. desember síðastliðinn og Fótbolti.net greindi frá fyrr í dag. Formannskjör FIFA fer fram þann 23. mars næstkomandi og er Infantino einn í framboði. Í fundargerð fundarins á Selfossi kemur hins vegar fram að KSÍ ætli sér ekki að styðja við framboð Infantinos og lýsir stjórn sambandsins yfir vonbrigðum sínum með tilteknar ákvarðanir FIFA sem teknar voru í tengslum við HM sem fram fór í Katar. „Rætt um málefni FIFA. Stjórn KSÍ lýsir yfir vonbrigðum með tilteknar ákvarðanir Alþjóða knattspyrnusambandsins (FIFA), sem hafa verið teknar í tengslum við Heimsmeistarakeppni karlalandsliða í Katar. Í ljósi þessa hefur stjórn KSÍ ákveðið að styðja ekki við framboð Gianni Infantino til forseta FIFA," segir í fundargerðinni. FIFA lá undir mikilli gagnrýni í aðdraganda heimsmeistaramótsins í Katar, og á meðan því stóð. Sambandið bannaði fyrirliðum Evrópuþjóða meðal annars að bera fyrirliðabönd með regnbogalitunum til stuðnings baráttu hinseginfólks, ásamt því að blaðamanninun Grant Wahl var meinaður aðgangur að leikvangi fyrir að klæðast bol í regnbogalitunum svo eitthvað sé nefnt.
KSÍ FIFA Mest lesið Lét dóttur sína hlaupa þrátt fyrir að hún ætti erfitt með að anda Sport Segir að Schumacher sé ófær um að tala: „Staðan er mjög sorgleg“ Formúla 1 „Verður gott að fá meiri frítíma en mun sakna strákanna“ Körfubolti Þóra og Ægir best en engin verðlaun í Skagafjörð Körfubolti Frumraun Gylfa í beinni í kvöld Íslenski boltinn Þau bestu verðlaunuð á lokahófi KKÍ Körfubolti Tók tapsáran Willum töluverðan tíma að jafna sig Sport Var ósátt en er nú mætt aftur í landsliðið Handbolti Ólympíufari lést í eldsvoða Sport Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Íslenski boltinn Fleiri fréttir Markasúpa í Mjólkurbikarnum Víkingar rúlluðu KR-ingum upp Breiðablik Lengjubikarmeistari eftir öruggan sigur á Þór/KA Segja Barcelona hafa svindlað og kærðu Arnór fyrsta nafn á eftirsóknarverðum lista Frumraun Gylfa í beinni í kvöld Spyrja sig hvort Freyr geti heillað eins og Slot í Liverpool „Mér finnst þeir geta farið í báðar áttir“ Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Harry Redknapp kallaði Tuchel þýskan njósnara Slegin út með tíu mörkum í tveimur leikjum Fögnuðu grimmt og gætu fengið bann Helgi Kolviðs aftur í þjálfun Sænska stórveldið keypti Ísabellu Söru Grindvíkingar sækja um í hamfarasjóð UEFA Heimi finnst aldursumræðan algjörlega galin Brassar vilja fá Ancelotti til bjargar Eiginkonan varð að færa Marquinhos miklar sorgarfréttir Ný treyja KR kynnt með pompi og prakt Gömul ummæli Bartons dregin fram: „Menn sem berja konur eru skíthælar“ „Þetta er veikara lið“ Besta-spáin 2025: Leiðin orðin grýttari Til skoðunar að tilkynna málið til lögreglu Chelsea og Man City gætu þénað sextán milljarða á HM félagsliða Glæsimark Russo fullkomnaði endurkomu Arsenal Lyon örugglega áfram á kostnað Bayern Glódís Perla aftur á bekknum Umboðsmaður Davies gagnrýnir landsliðsþjálfarann Reiði í Danmörku: Sagður skvapaður og eins og barn með lömunarveiki „Mjög krefjandi tímabil framundan“ Sjá meira