Skoðun

Varnarstefna fyrir Ísland?

Friðrik Jónsson skrifar

Nú þegar rúmir 10 mánuðir eru liðnir frá upphafi endurárásar Rússlands í Úkraínu hefur ekki mikið frést af fyrirætlunum íslenskra stjórnvalda varðandi varnir landsins í breyttu öryggisumhverfi. Nýsamþykkt fjárlög fyrir 2023 bera þó með sér mikil tíðindi, en bein útgöld til fjárheimildar liðarins „Samstarf um öryggis- og varnarmál“ var aukinn um tæp 50% milli ára, eða úr þremur milljörðum í tæplega fjóra og hálfan milljarð.

Auk þessa skuldbundu íslensk stjórnvöld sig til róttækra aðgerða á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í lok júní síðastliðinn, bæði í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoganna og með samþykki á nýrri grunnstefnu bandalagsins. Til viðbótar er Ísland hluti af auknu samstarfi Norðurlandanna á sviði varnar- og öryggismála sem boðað var með sameiginlegri yfirlýsingu forsætisráðherranna fimm í ágúst síðastliðnum. Allt þetta hlýtur að hafa áhrif og afleiðingar á framkvæmd og fyrirkomulag jafn mikilvægs málaflokks hér á landi.

Í breyttum heimi þar sem ábyrgð stjórnvalda hvað varðar hefðbundnar varnir hafa á ný orðið forgangsverkefni, er eðlilegt að velta fyrir sér hvort stjórnsýsluleg og fjárhagsleg ábyrgð og stefnumörkun séu nógu skýr. Staðreyndin er sú að varnir landsins hvíla nær alfarið á alþjóðlegu samstarfi og því að herlaust land tryggir ekki varnir sínar án öflugs og trausts samstarfs við bandalagsþjóðir.

Í umræðu undanfarinna vikna tengt aðlögun á þjóðaröryggistefnu Íslands frá 2016 hefur komið fram gagnrýni að hún taki þrátt fyrir breytingar ekki nægjanlegt tillit til breyttrar stöðu. Að eiginlegum vörnum landsins sé ekki gerð fullnægjandi skil. Baldur Þórhallsson, prófessor, hefur í því samhengi varað við því að Íslands megi ekki vera veikasti hlekkurinn í varnarkeðju Atlantshafsbandalagsins.

Grunnvandinn er kannski sá að eiginleg varnarstefna fyrir Ísland hefur aldrei verið formfest umfram það sem segir í þjóðaröryggisstefnunni „Að aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu verði áfram lykilstoð í vörnum Íslands...“ og „Að varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna frá 1951 tryggi áfram varnir Íslands ...“.

Hér má úr bæta og tímabært að unnin verði sérstök varnarstefna fyrir Ísland byggð á þeim forsendum sem fram koma í þjóðaröryggisstefnunni og í ljósi breyttra aðstæðna. Varnarstefna sem leggi grunn að og skýri markmið, stjórnsýslulegt fyrirkomulag, framkvæmd, ábyrgð og fjármögnun varna Íslands. Sú stefna verði hluti af þjóðaröryggisstefnu og uppfærð með reglubundnum hætti. Þetta mætti tilgreina í uppfærðri þjóðaröryggisstefnu og jafnframt fela utanríkisráðuneytinu að vinna slíka stefnu. Taka mætti mið af varnarstefnum helstu nágrannaríkja og grunnstefnu Atlantshafsbandalagsins.

Höfundur er sérfræðingur á sviði öryggis- og varnarmála.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×