„Við höfum frétt að hælisleitendur og flóttamenn, sem ekki þekkja vel til markaðarins, hafi lent í klóm þessara hrappa,“ segir Breki í samtali við Vísi.
Hér er komið enn eitt dæmi um ófremdarástand sem nú ríkir á húsnæðis- og leigumarkaði sem óprúttnir svikahrappar vilja nýta sér.
Heimta sérstakt umsóknargjald
Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna barst ábending um að íbúðir væru auglýstar til leigu á samfélagsmiðlum á óvenju hagstæðu leiguverði. Virðist sem óprúttnir þrjótar reyni að nýta sér neyð húsnæðisleitenda.
Umræddir glæpamenn hafa fé uppúr krafsinu með þeim hætti að til þess að eiga þess kost að sækja um íbúðirnar þarf að greiða sérstakt umsóknargjald sem er á bilinu 4.900 kr. til 14.000 krónur.

„Neytendasamtökin telja slíkt gjald fáránlegt og vara fólk við að greiða slík gjöld. Neytendasamtökin hafa spurnir af því að fólk hafi í góðri trú greitt gjaldið og hafa boðið fram aðstoð sína við að fá það endurgreitt,“ segir á heimasíðu samtakanna.
Myndum stolið af innanhússarkítektúr og hótelum
Þar kemur jafnframt fram að við leit komi í ljós að myndir sem eiga að vera af téðum leiguíbúðum í Reykjavík eru fengnar frá hinum ýmsu stöðum.
„Eins og á Facebook síðu fyrir innanhúsarkitektúr í Eistlandi og frá hóteli í Ósló. Leikur enginn vafi á að umræddar myndir eru ekki af íbúðum í Reykjavík. Þá er nafn meints fyrirtækis ekki að finna í fyrirtækjaskrá.“
Breki segir að þessi svikastarfsemi hafi þegar verið tilkynnt til lögreglunnar. Eitt dæmi um vafasama íbúð af þessu tagi má sjá á meðfylgjandi mynd.

Breki segir að 220 þúsund króna leiga þyki reyfarakaup á leigumarkaði, sérstaklega ef íbúðin er búin sem þessi. „Því miður. Miðað við markaðinn og myndir af íbúðinni, það er hinni meintu leiguíbúð, þá þykir þetta góður prís.“
Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna hvetur húsnæðisleitendur til þess að hafa varann á, og skoða vel þá sem bjóða húsnæði til leigu. Það sé meðal annars hægt með því að fletta fyrirtækjum upp í fyrirtækjaskrá Skattsins.
Annað dæmi um svikasíðu gæti svo verið þetta:
