Rafíþróttir

Ljósleiðaradeildin í beinni: Barist í neðri hlutanum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Leikir kvöldsins.
Leikir kvöldsins.

Fjórtánda umferð Ljósleiðaradeildarinnar hefst í kvöld með tveimur leikjum þar sem barist verður í neðri hluta deildarinnar. Fjórtánda umferðin er jafnframt sú seinasta fyrir seinni Ofurlaugardag tímabilsins.

Við hefjum leik klukkan 19:30 þegar FH og LAVA eigast við. LAVA situr í fimmta sæti deildarinnar með 14 stig, líkt og Ármann og Breiðablik, en FH situr í áttunda sæti með tíu stig.

Þá eigast Ten5ion og Breiðablik við í síðari viðureign kvöldsins klukkan 20:30. Ten5ion situr í næst neðsta sæti með fjögur stig og getur því slitið sig frá botninum með sigri, í það minnsta tímabundið.

Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá viðureignum kvöldsins í Ljósleiðaradeildinni á Stöð 2 eSport, eða í spilaranum hér fyrir neðan.






×