Kolo Toure rekinn eftir aðeins 59 daga hjá Wigan Smári Jökull Jónsson skrifar 26. janúar 2023 20:34 Kolo Toure tók við sem þjálfari Wigan í nóvember. Vísir/Getty Kolo Toure hefur verið rekinn sem þjálfari Wigan eftir að hafa aðeins verið við stjórnvölinn í rúma tvo mánuði.
Toure tók við sem þjálfari Wigan Athletic í nóvember en liðið leikur í næst efstu deild á Englandi, Championship deildinni. Félaginu hefur gengið afleitlega í vetur og ráðning Toure hafði lítið að segja því liðið hefur ekki náð í sigur í síðustu níu leikjum. Dropinn sem fyllti mælinn var tap gegn Luton á heimavelli á þriðjudag en það var annað tap liðsins á heimavelli á aðeins fjórum dögum. Wigan er í neðsta sæti Championship deildarinnar, fjórum stigum frá öruggu sæti. Wigan Athletic can confirm that they have parted company with First Team Manager, Kolo Touré.#wafc #BELIEVE— Wigan Athletic (@LaticsOfficial) January 26, 2023 Framkvæmdastjóri Wigan, Malachy Brannigan, segir að það hafi verið rétti tíminn að breyta til núna. Kevin Betsy og Ashvir Johal, aðstoðarmenn Toure yfirgefa einnig félagið. „Í fyrsta lagi langar mig til að þakka Kolo, ásamt Kevin og Ash, fyrir þeirra framlag hjá félaginu. Úrslitin á vellinum hafa ekki verið þau sem við viljum og þó þetta hafi verið erfið ákvörðun þá er stjórnin á þeirri skoðun að hún hafi veirð nauðsynleg til að gefa okkur sem besta möguleika á að vera áfram í Championship deildinni á næsta tímabili.“ Kolo Toure átti farsælan feril að baki sem leikmaður og lék lengi vel með Arsenal auk þess að spila fyrir Manchester City, Liverpool og Celtic.
Enski boltinn Mest lesið Skalf meðan hann lagði Carlsen: „Þetta var algjörlega galið“ Sport Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Enski boltinn Ítölsk stelpa ferðaðist 1.800 kílómetra til að sjá Jón Axel Körfubolti Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Enski boltinn „Erfitt að spila á móti liði sem fær þrjár villur í seinni“ Körfubolti Dagskráin í dag: Bónus, Besta og Stúkan á sumardaginn fyrsta Sport Andri Rafn fimmti í þrjú hundruð leikja klúbbinn Íslenski boltinn „Gott að sjá honum blæða á vellinum“ Körfubolti Hvergerðingar í úrslit umspilsins Körfubolti „Hætti þessari fortíðarþráhyggju minni með Vestmannaeyjar“ Handbolti Fleiri fréttir Snýr aftur eftir lungnabólguna Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Dramatík í Manchester United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Reyna að lesa eitthvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Sjá meira