Jóhann Berg lagði upp í þægilegum sigri Burnley sem stefnir hraðbyri upp í úrvalsdeildina Smári Jökull Jónsson skrifar 4. febrúar 2023 14:45 Jóhann Berg á ferð með Burnley fyrr í vetur. Vísir/Getty Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley stefna óðfluga á sæti í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en liðið vann í dag enn einn sigurinn í Championship-deildinni.
Jóhann Berg og félagar hafa farið hamförum í Championship-deildinni í vetur og fyrir leikinn í dag voru þeir búnir að vinna átta leiki í röð í deildinni. Jóhann Berg var í byrjunarliði þjálfarans Vincent Kompany í dag en Jóhann Berg hefur verið að spila vel að undanförnu. Og sigurgangan hélt áfram í dag á útivelli gegn Norwich. Burnley komst í 1-0 strax á 8.mínútu með marki frá Anass Zaroury og staðan í hálfleik var 1-0. Gestirnir gerðu hins vegar út um leikinn í upphafi síðari hálfleiks. Fyrst skoraði Vitinho eftir góða fyrirgjöf frá Jóhanni Berg og Hjalmar Ekdal kom Burnley í 3-0 sex mínútum síðar. Jóhann Berg fór af velli á 73.mínútu en það kom ekki að sök og Burnley vann þægilegan 3-0 sigur og er með sjö stiga forskot á Sheffield United á toppi deildarinnar. Þá eru þeir tuttugu stigum á undan Middlesbrough í þriðja sætinu en tvö efstu lið deildarinnar fara beint upp í úrvalsdeild.
Mest lesið Andri Rafn fimmti í þrjú hundruð leikja klúbbinn Íslenski boltinn „Erfitt að spila á móti liði sem fær þrjár villur í seinni“ Körfubolti Hvergerðingar í úrslit umspilsins Körfubolti KA Íslandsmeistari og tók alla titlana Sport Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Enski boltinn Dagskráin í dag: Bónus, Besta og Stúkan á Sumardaginn fyrsta Sport Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Fyrirliðinn kom heimamönnum til bjargar Íslenski boltinn Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Enski boltinn „Adam Ægir hefði alveg mátt gefa á mig“ Fótbolti Embla og Eva Björk í ham þegar Stjarnan komst yfir Handbolti Fleiri fréttir Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Dramatík í Manchester United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Reyna að lesa eitthvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Sjá meira