„Mín skoðun er sú að Aðalsteinn hefði aldrei átt að láta undan þessum óbilgjarna þrýstingi frá Eflingu og segja sig frá þessari deilu, en þetta er staðan sem er komin upp og auðvitað verðum við að vænta þess að nýr ríkissáttasemjari geti látið til sín kveða í þessari deilu, sem er komin í algjöran hnút,“ sagði Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við fréttastofu fyrr í dag.
Þá lá ekki fyrir hver yrði settur ríkissáttasemjari í deilunni, en Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur sett Ástráð Haraldsson héraðsdómara til verksins.
Ekki nóg að lýsa yfir samningsvilja
Spurður hvort ekki væri mikilvægt að aðilar deilunnar settust niður og ræddu málin til að koma í veg fyrir víðtækari verkfallsaðgerðir, sem ná til hótelstarfsfólks og olíuflutningabílstjóra, sagðist Halldór Benjamín telja svo vera.
„Að sjálfsögðu er það skylda beggja aðila, en til þess að aðilar geti samið þá verður Efling að byrja á því að mæta til fundar þegar ríkissáttasemjari boðar fundi í deilunni. Við sjáum að ríkissáttasemjari var að ganga frá kjarasamningi við sjómenn, til tíu ára, ásamt SFS. Þannig að það virðast allir geta samið þarna, nema Efling.“
Þá segir hann skamman tíma til stefnu, þar sem verkfall olíuflutningabílstjóra muni hafa grafalvarlegar afleiðingar.
„Ég hef orðað þetta með þeim hætti að staðan í íslensku samfélagi um eða eftir helgi verður skelfileg. Hér mun allt lamast með einum eða öðrum hætti. Við gerum ráð fyrir því að það verði fleiri hundruð ef ekki þúsundir ferðamanna á vergangi og geti ekki innritað sig á hótel um helgina. Þannig að staðan í þessari deilu er orðin grafalvarleg og er farin að varða öryggi fólks. Og ég vænti þess að þar til bærir opinberir aðilar muni stíga inn í hana með eitthvað viðbragð til þess að bjarga því sem bjargað verður, úr því sem komið er,“ segir Halldór Benjamín.
Tíminn sem sé til stefnu sé mældur í dögum sem teljandi eru á fingrum annarrar handar.
„Hér verður allt komið í óleysanlegan hnút í samfélaginu og við getum ekki gert ráð fyrir því að samfélagið muni einfaldlega ganga sinn vanagang, strax í næstu viku. Þannig að það er ljóst að Efling þarf að mæta á fundi hjá ríkissáttasemjara, en ekki bara lýsa því yfir að það sé mikill samningsvilji á þeim bænum.“
Of snemmt að ræða lagasetningu
Aðspurður hvort SA vildi að lög yrðu sett á verkfallið ef samningar næðust ekki á næstu dögum svaraði Halldór Benjamín því til að vinnulöggjöfin yrði nýtt til fulls, til að knýja á um ásættanlega lausn deilunnar.
„Ég tel að það sé of snemmt að úttala sig um það á þessari stundu. En allir ábyrgir aðilar sem meta stöðuna frá degi til dags hljóta að sjá að við getum ekki látið þessa stöðu raungerast marga daga í röð,“ sagði Halldór Benjamín.