Ökumaðurinn talinn hafa ekið vegfarendur viljandi niður Kjartan Kjartansson skrifar 14. mars 2023 23:32 Slökkviliðsmaður á vettvangi í Amqui í Quebec þar sem ökumaður pallbíls ók niður gangandi vegfarendur með þeim afleiðingum að tveir létust og níu særðust. AP/CTV News Saksóknarar í Quebec í Kanada ákærðu karlmann á fertugsaldri fyrir háskaakstur eftir að hann ók pallbíl inn í hóp gangandi vegfarenda í gær. Tveir aldraðir karlmenn létu lífið en ökumaðurinn er talinn hafa ekið viljandi á fólkið.
Níu til viðbótar særðust þegar ökumaðurinn ók bíl sínum á fólk sem gekk eftir vegi í Amqui, um 650 kílómetra norðaustur af Montreal, í gær. Lögreglurannsókn stendur enn yfir en saksóknarar segja of snemmt að segja til um hvort að ökumaðurinn verði ákærður fyrir morð. Þeir boða þó frekari ákærur. Talsmaður lögreglunnar segir að eftirgrennslan hennar bendi til þess að ökumaðurinn hafi ekið á fólkið að yfirlögðu ráði og að fórnarlömbin hafi verið valin af handahófi, að því er kemur fram í frétt Reuters. Saksóknarinn segir ekki ljóst hvað manninum gekk til. Hann sé á sakaskrá en ekki vegna alvarlegra glæpa. Aðeins um mánuður er liðinn frá því að rútubílstjóri var ákærður fyrir morð eftir að hann varð tveimur börnum að bana þegar hann ók rútu sinni á barnaheimili í Montreal.
Kanada Erlend sakamál Mest lesið „Málinu verður ekki lokað fyrr en einhver axlar raunverulega ábyrgð“ Innlent Virginia Giuffre er látin Erlent Rukkaði konuna fyrir heimferðina eftir að hafa nauðgað henni Innlent Þarf lítið til svo hægt yrði að hækka hámarkshraða í 120 Innlent Hittust í fyrsta sinn eftir að upp úr sauð Erlent Myndir: Ráðamenn heims fylgja Frans páfa til hinstu hvílu Erlent „Ég hef aldrei séð þetta svona svakalegt“ Innlent Sex ára gamalt hús í viðgerð: Ekki við flötu þökin að sakast Innlent Bein útsending: Útför Frans Páfa Erlent Eitt glæsilegasta hrossaræktarbú landsins til sölu Innlent Fleiri fréttir Segir Pútin ekki vilja enda stríðið Hittust í fyrsta sinn eftir að upp úr sauð Myndir: Ráðamenn heims fylgja Frans páfa til hinstu hvílu Virginia Giuffre er látin Bein útsending: Útför Frans Páfa Bandaríkin vilja láta meira undan Rússum en Evrópa Hátt settur herforingi fórst í bílsprengju nærri Moskvu Mislingar á mörkum þess að verða landlægir í Bandaríkjunum aftur Þrír látnir og tugir særðir Byrjaður að selja varning merktan „Trump 2028“ Tugir þúsunda kveðja páfann fyrir útförina Með nettengingu í trássi við öryggisreglur til að komast inn á Signal Neituðu sök en viðurkenna nú að hafa drepið hjálparstarfsmann Árásarmaðurinn sagður aðhyllast hugmyndir Hitler Dæmdur kardínáli segist mega kjósa næsta páfa „Vladímír, HÆTTU!“ Nemandi látinn eftir árás í frönskum skóla Hitnar í kolunum hjá Indlandi og Pakistan Sífellt fleiri Palestínumenn mótmæla stjórn Hamas Níu látnir eftir eldflaugaárás á Kænugarð Sænskur blaðamaður gæti farið í fangelsi fyrir að móðga Erdogan Vilja ræða frið en ekki uppgjöf Rýna í innyfli deyjandi reikistjörnu Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Umfangsmesta fölnun kóralrifja sem sögur fara af Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Eigandi Paramount með puttana í umfjöllun 60 mínútna Frjálslyndir með forskot á lokaspretti kosningabaráttunni Úkraínufundinum í London frestað Lík páfans flutt í Péturskirkju í dag Sjá meira