Erlent

Hátt settur her­foringi fórst í bíl­sprengju nærri Moskvu

Kjartan Kjartansson skrifar
Starfsmenn öryggisstofnana á vettvangi sprengjutilræðisins gegn Jaroslav Moskalik í Balashika, úthverfi Moskvu, í morgun.
Starfsmenn öryggisstofnana á vettvangi sprengjutilræðisins gegn Jaroslav Moskalik í Balashika, úthverfi Moskvu, í morgun. AP

Undirhershöfðingi sem situr í herforingjaráði Rússlands lést þegar bílsprengja sprakk í bænum Balashikha í umdæmi höfuðborgarinnar Moskvu í morgun. Sprengjan er sögð hafa sprungið þegar herforinginn gekk fram hjá kyrrstæðum bíl.

Rússneska alríkislögreglan staðfestir að Jaroslav Moskalik, aðstoðaryfirmaður aðalaðgerðastjórnar herforingjaráðs rússneska hersins, hafi látist í sprengingunni. Sprengja sem var fyllt með höglum hafi sprungið í Volkswagen Golf-bifreið.

Þarlendir fjölmiðlar segja að Moskalik hafi verið á gangi í nágrenni heimilis síns þegar bíll var sprengdur í loft upp. Reuters-fréttastofan segist ekki geta staðfest fullyrðingar rússnesku miðlanna sjálf. Myndir frá vettvangi sýna brennandi bíl fyrir utan íbúðarhús.

Breska ríkisútvarpið BBC segir að Moskalik hafi meðal annars verið einn fulltrúa herforingjaráðsins sem tók þátt í viðræðum við Úkraínumenn í París árið 2015, árið eftir að Rússar innlimuðu Krímskaga ólöglega.

Sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar var væntanlegur til Moskvu í dag til viðræðna við Vladímír Pútín forseta um tillögu að friðaráætlun í Úkraínu.

Röð banatilræða í Rússlandi

Ekkert hefur komið fram ennþá um hver stóð að baki sprengjutilræðinu. Nokkur launmorð hafa þó átt sér stað í Rússlandi á undanförnum misserum sem tengjast hernaði Rússa í Úkraínu.

Í febrúar var Armen Sakisjan, leiðtogi vopnaðrar sveitar sem er hliðholl Rússum í Austur-Úkraínu, ráðinn af dögum þegar sprengja sprakk í anddyri lúxusblokkar í Moskvu. Rússneska lögreglan sagði að það tilræði hefði verið þaulskipulagt en enginn lýsti yfir ábyrgð á því.

Úkraínumenn gengust óformlega við því að hafa myrt Ígor Kirillov, rússneskan herforingja, með sprengju sem var komið fyrir í rafhlaupahjóli í Moskvu í desember. Kirillov hafði verið ákærður í Úkraínu fyrir að beita efnavopnum þar.

Þá voru Úkraínumenn að verki þegar Daria Dugina, dóttir eins helsta hugmyndafræðings rússnesku ríkisstjórnarinnar, var drepin í bílsprengju nærri Moskvu í ágúst árið 2022, um hálfu ári eftir að innrás Rússa hófst. Dugina hafði sjálf verið álitsgjafi í rússneskum fjölmiðlum og endurómað hugmyndir föður síns um rússneska heimsvaldastefnu.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Útsendarar SBU sagðir hafa ráðið herforingjann af dögum

Úkraínskir embættismenn segja að útsendarar Öryggisstofnunar Úkraínu, sem er leyniþjónsta og í daglegu tali kallast SBU, hafi ráðið rússneskan herforingja af dögum í Mosvku í morgun. Herforinginn var í gær ákærður í Úkraínu fyrir notkun efnavopna.

Telja Úkraínu­menn hafa myrt dóttur ráðgjafa Pútíns

Bandaríska leyniþjónustan telur að útsendarar úkraínskra stjórnvalda hafi staðið að bílsprengjuárás í Rússlandi sem varð dóttur ráðgjafa Vladímírs Pútín forseta að bana í sumar. Úkraínumenn eru sagðir hafa fengið skömm í hattinn frá bandamönnum sínum vegna tilræðisins.

Skot­mark sprengingar í Moskvu her­foringi frá Austur-Úkraínu

Rússnesk yfirvöld segja að skotmark banatilræðis í Moskvu í morgun hafi verið leiðtogi vopnaðrar sveitar sem er hliðholl Rússum í Austur-Úkraínu. Hann og lífvörður hans féllu þegar sprengja sprakk í anddyri lúxusblokkar.

Útsendarar SBU sagðir hafa ráðið herforingjann af dögum

Úkraínskir embættismenn segja að útsendarar Öryggisstofnunar Úkraínu, sem er leyniþjónsta og í daglegu tali kallast SBU, hafi ráðið rússneskan herforingja af dögum í Mosvku í morgun. Herforinginn var í gær ákærður í Úkraínu fyrir notkun efnavopna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×