Skoðun

Aukið sam­starf í átt að kol­efnis­hlut­leysi

Þór Sigfússon skrifar

Ísland hefur sett sér það markmið að við verðum kolefnishlutlaus ekki síðar en árið 2040. Tíminn líður hratt og verkefnin sem færa okkur nær þessu markmiði eru mörg – en það eru tækifærin líka. Nú er tíminn til að skoða nýjar lausnir og nýta þessi tækifæri.

Eitt af því sem getur stutt við þá vegferð sem við erum öll á er aukið samstarf grænna iðngarða og klasasamfélaga, enda deila þau fjölmörgum eiginleikum. Iðngarðar og klasar leggja áherslu á aukna samvinnu þvert á greinar, sem styrkir fyrirtæki og veitir þeim samkeppnisforskot.

Fyrirtæki sem starfa innan grænna iðngarða eru í nánu samstarfi við hvort annað og skapast þá ákveðin samstaða þeirra á milli. Stjórnendur iðngarðanna gegna hinsvegar því hlutverki að samnýta auðlindir og ýta undir hringrás efna eins og vatns, orku og úrgangs milli fyrirtækjanna. Einnig er það í þeirra höndum að byggja upp traust milli fyrirtækjanna og aðstoða við samstarf.

Klasasamfélög eru hinsvegar með breiðari sýn á þær auðlindir sem eru í boði innan hringrásarinnar. Í klösunum er lögð áhersla á sprotafyrirtæki, frumkvöðla, fjárfesta, háskólasamfélagið og rannsókna- og þróunarstofnanir. Þeirra markmið er að starfa sem tengiliður, skapa og ýta undir hugmyndir. Þetta eru auðvitað gríðarlega mikilvæg hlutverk innan hringrásarhagkerfisins enda vitum við að það eru fjölmargar hugmyndir þarna úti sem vantar sterka tengingu, fjármögnun, viðskiptaáætlun og önnur úrræði til að vaxa og dafna.

Grænir iðngarðar og klasasamfélög eru í frábærri stöðu til þess að vinna betur saman; til þess að sækja tækifæri í sameiningu. Með samstarfi veitum við sprotafyrirtækjum og frumkvöðlum enn víðtækari aðstoð til að stíga sín fyrstu skref og koma hugmyndum sínum út úr bílskúrnum.

Ég er viss um að aukið samstarf eða sameining klasa og grænna iðngarða, sem myndi stækka tengslanet frumkvöðla og skapa fleiri samtöl og staði til þess að skiptast á hugmyndum, geti flýtt fyrir þróun hringrásarhagkerfis. Einnig skapar það traust – sem skiptir sköpum þegar kemur að því að miðla þekkingu og skuldbinda sig til sameiginlegra verkefna og fjárfestinga.

Við þurfum öll að horfast í augu við það að á ferðalagi Íslands í átt að kolefnishlutleysi þurfum við allar hugmyndir að borðinu og að styrkja staðina þaðan sem hugmyndirnar koma. Sterkari tengsl milli iðngarða og klasasamfélaga geta hjálpað okkur að komast þangað.

Tækifærin í kolefnishlutlausum heimi er meðal umfjöllunarefna á ársfundi Grænvangs á þriðjudaginn. Fundurinn fer fram í Grósku kl. 13 – 15 og eru öll velkomin. Skráning fer fram hér .

Höfundur er stofnandi Sjávarklasans. 




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×