
Í tilkynningu frá sveitarfélaginu segir að drengurinn hafi komið í heiminn 15. mars síðastliðinn og fengið merkta samfellu og smekk sem hæfir tilefninu. Þá færði Ásdís þeim einnig blóm og gjafakort.
Foreldrar drengsins heita Árni Grétar Finnsson og Melkorka Þöll Vilhjálmsdóttir.
Drengurinn nýfæddi er þriðja barn foreldra sinna, en eldri systkin heita Finnur og Sesselja Katrín.
Haft er eftir Melkorku að fæðing drengsins hafi gengið prýðisvel. „Það er mjög gaman að eiga Kópavogsbúa númer 40.000,“ segja foreldrarnir sem fluttu búferlum í Kópavog árið 2020.
Þess má geta að íbúafjöldi í Kópavogi fór yfir 20 þúsund árið 1999 en yfir 30 þúsund árið 2010.