Margir hafa lagt land undir fót þessa helgina enda viðburðir úti um allt land. Umferðin hefur gengið vel að sögn lögreglu og lítið hefur verið um slys á fólki. Þó nokkrir ökumenn hafi ekið of geyst þá hafi allflestir farið sér hægt og komist heilu og höldnu á áfangastað.
Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður fer fram á Ísafirði eins og alltaf um páskahelgina, það er blásið til heljarinnar veislu sem kölluð er Tindastuð á Sauðárkróki í tengslum við páskana sem og leik í úrslitakeppninni í körfubolta. Talsverð umferð hefur verið á Suðurlandsvegi enda fólk að skella sér í sumarbústað og svo er Siglufjörður alltaf vinsæll viðkomustaður á þessum árstíma og dagskrá á börum og veitingahúsum bæjarins alla helgina.
Þá eru ótaldir þeir sem fara erlendis, en stríður straumur fólks liggur til Keflavíkur og þaðan til Tenerife en flugfélög hafa vart undan að flytja sólarþyrsta Íslendinga til eyjarinnar grænu. Bílastæði á Keflavíkurflugvelli eru full og umferð um Reykjanesbraut hefur verið mikil síðustu daga.
Þórir Þorsteinsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum segir umferðina um Reykjanesbraut hafa gengið vel.
„Það hefur verið talsverð umferð á brautinni, en allt bara gengið mjög vel. Öllu meiri umferð en venjulega, en það er svo sem alltaf mikil umferð á Reykjanesbraut.“
Talað hefur verið um að vegna bílastæðaleysis á flugvellinum séu ferðamenn að leggja í Keflavík og taka leigubíl þaðan á flugvöllinn. Þórir segist ekki hafa orðið var við slíkt.
„Það hefur ekki komið neitt til okkar í dag. En auðvitað hefur maður heyrt umræðu um að þetta sé stundað.“