Frestur til að óska eftir þátttöku í alútboði um smíði Ölfusárbrúar rann út í dag. Alls voru fimm verktakafyrirtæki sem sóttu um, þar af þrjú erlend, eitt íslenskt og eitt alþjóðlegt samstarf.
Eftirfarandi fyrirtæki sóttu um þátttöku í útboðinu: Hochtief Infrastructure frá Essen í Þýskalandi, IHI Infrastructure Systems frá Tokýó í Japan, Puentes y Calzada Infraestructuras frá Spáni, ÞG verktakar frá Íslandi og sameiginlegt tilboð verktakanna Ístak, Per Aarsleff og Freyssinet.
Í kjölfarið mun fara fram hæfismat og þeir sem verða metnir hæfir verður boðin þátttaka. Vonast er til að samningar náist á þessu ári.
Stefnt að því að ljúka framkvæmdum 2026
„Við óskuðum eftir þekkingu og reynslu af sambærilegum mannvirkjum þannig það er eðlilegt að menn leiti sér samstarfs erlendis við slíkar framkvæmdir,“ sagði Guðmundur Valur Guðmundsson, verkefnisstjóri Ölfusárbrúar hjá Vegagerðinni, í viðtali við fréttastofu
„Í framhaldi af tilboði og samningaviðræðum sem tekur einhverja mánuði þá væntum við þess að við séum komin með verksamning fyrir lok árs,“ segir Guðmundur.
Þar sem um alútboð er að ræða er verktaka gert að leggja vegi að brúnni, gatnamót og undirgöng en áætlað er að framkvæmdirnar taki tvö til tvö og hálft ár. Stefnt er á að framkvæmdum við byggingu Ölfusárbrúar ljúki árið 2026.
Á vef Vegagerðarinnar segir að brúin verði 330 metra löng stagbrú með 60 metra háum turni á Efri-Laugardælaeyju. Brúargólfið verði nítján metra breitt og er gert ráð fyrir 2+1 vegi með aðskildum aksturstefnum ásamt göngu- og hjólaleið. Einnig sé gert ráð fyrir göngu- og hjólaleið undir brúna á báðum árbökkum.