Innlent

Hraðbankinn enn ekki látinn í friði

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gengið er inn um dyrnar og svo beygt til hægri til að komast í hraðbankann sem glæpamenn landsins virðast hafa mikinn áhuga á að ræna.
Gengið er inn um dyrnar og svo beygt til hægri til að komast í hraðbankann sem glæpamenn landsins virðast hafa mikinn áhuga á að ræna. Vísir/Anton Brink

Tveir karlmenn voru handteknir í nótt þegar þeir gerðu tilraun til að brjótast inn í hraðbanka Landsbankans við Fjarðargötu í Hafnarfirði. Um er að ræða þriðju tilraunina til að stela peningum úr bankanum á nokkrum mánuðum.

Fram kom í dagbók lögreglunnar sem send er til fjölmiðla árla morguns um almenn löggæsluverkefni næturinnar að tveir hefðu verið handteknir við að brjótast inn í hraðbanka. Helgi Gunnarsson, lögreglufulltrúi í Hafnarfirði, staðfestir að um er að ræða hraðbankann í Fjarðargötu.

Tilraun varð gerð til að sprengja upp hraðbankann í byrjun mánaðar. Í lok síðasta árs var gerð tilraun til að stela úr sama hraðbanka.

Engin ummerki voru eftir innbrotstilraunina í nótt þegar ljósmyndari Vísis leit við á ellefta tímanum í morgun. Innbrotstilraunin hefur því ekki verið jafn umfangsmikil og þær fyrri. 

Í desember reyndi maður með hulið andlit að bakka stolnum jeppa í gegnum glervegg útibúsins. Því næst klöngraði hann sér í gegnum brotið glerið með keðju sem hann festi á milli hraðbankans og jeppans. Svo var stigið á bensínið en bankinn hreyfðist ekki úr stað.

Í apríl var sprengiefni sett inn við hraðbankann, þrætt út fyrir dyrnar og sprengt. Nokkuð tjón varð á bankanum en viðkomandi tókst ekki að hafa nein verðmæti á brott með sér.

Helgi sagði við það tilefni ekki óþekkt að menn reyni að sprengja upp hraðbanka.

„Þetta er bara orðinn einn hluti af þessari skipulögðu glæpastarfsemi,“ sagði Helgi lögreglufulltrúi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×