Eða hvað?
Nei, staðreyndin er sú að viss hópur fólks upplifir ekkert endilega tilhlökkun fyrir þessum tíma. Því hjá sumu fólki er þetta sá tími þar sem þunglyndi er líklegra til að gera vart við sig miðað við aðra árstíma.
Á heilsuvefsíðunni WebMD segir meðal annars að eitt af því sem gerir sumarþunglyndi svolítið sérstakt er að margir fá samviskubit yfir því að líða ekki vel á þessum árstíma.
Því þegar vorar eða sólin skín á fallegum sumardegi er svo innbyggt í okkur að þetta sé sá tími þar sem allir eigi hreinlega að vera syngjandi glaðir.
Samkvæmt rannsóknum er sumarþunglyndi hins vegar mun algengari en fólki oftast grunar og tölur eru alls ekki að styðja við það að það sé sjaldgæfara á vorin og sumrin miðað við á veturinn.
Í fyrrgreindri grein eru nokkrar skýringar nefndar sem dæmi:
Á sumrin breytist oft rútínan okkar sem getur gert fólki erfiðara fyrir hafi það upplifað þunglyndi eða einkenni þess.
Neikvæð líkamsvitund. Þegar sólin skín, allir vilja fara í heitu pottana eða sund eða í sumarfrí til sólarlanda upplifa sumir vanlíðan vegna þess að líkamsvitundin þeirra er neikvæð, óöryggi og lágt sjálfsmat eykst.
Fjárhagsáhyggjur. Sumarfrí geta verið dýr og sumt sem fylgir sumrinu kallar á aukaútgjöld. Til dæmis frístundir eða námskeið fyrir börnin okkar, sumarfríið sem fjölskyldunni langar í og svo framvegis.
Í sumum löndum getur sól og hiti aukið á vanlíðan. Á Íslandi eiga sumir erfitt með sólahringsbirtuna.
Góðu ráðin
Hér eru nokkur góð ráð sem geta hjálpað okkur að sporna við vor- og sumarþunglyndi:
1. Leitaðu þér hjálpar. Að tala við heimilislækninn er gott fyrsta skref og mælt með.
2. Búðu til plan/áætlun. Ef þér finnst eins og þessi árstími sé sá tími sem þér finnst oft vera erfiður, er ágætt að reyna að sporna við þessari líklegu líðan með því að skipuleggja fram í tímann ýmiss atriði sem þér finnst líklegt að létti þér lundina. Til dæmis hvenær og hvernig þú skipuleggur sumarfríið þitt.
3. Svefn. Þar sem við búum við mikla birtu á sumrin er mikilvægt að huga að svefninum sérstaklega því hann skiptir alltaf svo miklu máli. Myrkvunartjöld fyrir gluggum gætu til dæmis hjálpað og eins að vera vakandi yfir því að vera með svefnrútínuna í föstum skorðum þótt sitthvað annað breytist í dagskránni okkar yfir sumartímann.
4. Hreyfing. Margar rannsóknir styðja það að hreyfing gerir okkur gagn þegar kemur að því að sporna við þunglyndi. Hins vegar eiga margir það til að slá af reglubundinni hreyfingu yfir sumartímann. Gott er að halda hreyfingunni áfram virkri þannig að ef það eru einhverjar æfingar sem þú ert vanur/vön að mæta á yfir veturinn sem falla niður á sumrin, að reyna að gera eitthvað annað í staðinn á þeim tímum.
5. Að sama skapi er mælt með því að við séum ekki að ofgera okkur eða of hörð við okkur sjálf þegar kemur að hreyfingu og matarræði. Það er líka í lagi að slaka á og njóta þannig að hér gildir að finna hinn gullna meðalveg og vera ekki að berja okkur niður þótt einhver aukakíló mæti á svæðið.
Fleiri ráð má lesa um hér.
Áskorun er nýr efnisflokkur á Vísi þar sem við munum fjalla á mannlegan hátt um málin þar sem við tökumst á við okkur sjálf, mál innan fjölskyldunnar, önnur samskipta- og/eða tilfinningatengd mál, veikindi, fíkn, bata, sorg, dauða, aldurstengd mál og fleira.