Fjórðungur hátt í 150 hvala sem voru veiddir við Ísland í fyrra liðu þjáningar í dauðastríði sínu þrátt fyrir að lög kveði á um að dýr skuli aflífuð hratt og sársaukalaust samkvæmt skýrslunni. Dæmi er tekið um að veiðimenn hafi elt hval með skutul í bakinu í fimm klukkustundir án árangurs.
Katrín Oddsdóttir, lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, lýsti skýrslunni sem „kolsvartri“ í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Fólk myndi aldrei horfa upp á slíka meðferð með neinni annarri dýrategund.
„Gætirðu ímyndað þér ef fólk hlypi hér um tún og væri að reyna að skutla einhverjum spjótum í kýr eða annað og kannski tækist í fjórðu umferð að ná henni dauðri. Við myndum aldrei sætta okkur við það,“ sagði Katrín.
Ráðherra beri að afturkalla veiðileyfi Hvals hf.
Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegsráðherra, sagði skýrsluna vekja spurningar um framtíð hvalveiði í umræðum á Alþingi um skýrsluna í dag. Ekki væri þó hægt að afturkalla hvalveiðileyfi fyrir þetta sumar. Leyfi Hvals hf. gilti út þetta ár.
Katrín gaf lítið fyrir þessi svör ráðherrans. Það þyrfti hugrekki til þess að ganga skerfinu lengra og stöðva hvalveiðar strax í ljósi þess sem kæmi fram í skýrslunni.
„Það er ekki í lagi að heimila veiðar beint ofan í svona skýrslu vegna þess að þá er tilgangurinn með eftirlitinu ansi hæpinn,“ sagði hún.
Veiðileyfið væri háð skilyrðum um að farið væri eftir öllum reglum. Þær reglur kveði á um að nota þurfi búnað við veiðarnar sem tryggi að hvalir séu aflífaðir samstundis. Í skýrslunni segir að einn af hverjum fjórum hvölum sem voru veiddir hafi verið skotnir oftar en einu sinni.
„Það er ljóst núna samkvæmt skýrslunni að það er ekki staðan. Þess vegna ber ráðherra, að mínu viti, að afturkalla leyfið,“ sagði lögmaðurinn.
Stjórnsýsluleg meðvirkni
Þrátt fyrir allt taldi Matvælastofnun í skýrslu sinni að ákvæði laga um velferð dýra hafi ekki verið brotin við hvalveiðarnar vegna þess að við þær hafi bestu þekktu aðferðum verið beitt við aðstæður sem þessar. Katrín sagði þessa niðurstöðu stofnunarinnar stórundarlega.
Alveg sé ljóst í dýravelferðarlögum sem flokkur Svandísar hafi haft frumkvæði að því að setja á sínum tíma að dýr skuli aflífuð með skjótum og sársaukalausum hætti. Lögin eigi við um hvali sem önnur dýr. Það að Ísland stundi enn hvalveiðar, einna síðustu þjóða, gefi því ekki afsökun til þess að túlka lögin öðruvísi en orðanna hljóðan.
„Ég veit að það er verið að búa til einhvern tíma til þess að láta leyfið bara renna út og leyfa kallinum sem er algerlega að farast úr frekju að veiða hérna í eitt tímabil í viðbót en það er bara alger óþarfi að það sé slík stjórnsýsluleg meðvirkni í þessu landi að það sé ekki hægt að grípa til ákveðinna aðgerða þegar lög eru skýrt brotin,“ sagði Katrín og vísaði óbeint til Kristjáns Loftssonar, eiganda Hvals hf.