Notendavænt og einfalt kassakerfi fyrir allar gerðir fyrirtækja Svar 12. maí 2023 10:58 Kassakerfið Xpress er þróað af Svar í samvinnu við Uniconta á Íslandi. Kerfið er mjög sveigjanlegt og hentar því vel fyrir fjölbreyttan rekstur að sögn Ívars Kristins Hallssonar og Grétars Arnar Hjartassonar, hugbúnaðarsérfræðinga hjá Svar. Mynd/Elín Björg / elinbjorg.com. Kassakerfið Xpress fyrir Uniconta er nýr framendi á Uniconta bókhaldskerfið og er þróað af Svar í samvinnu við Uniconta á Íslandi.
Xpress býr því yfir öllum eiginleikum sem Uniconta hefur og erfir allar uppfærslur án sérstakrar samþáttunar segja þeir Ívar Kristinn Hallsson og Grétar Örn Hjartarson hugbúnaðarsérfræðingar hjá Svar. „Xpress er mjög sveigjanlegt og hentar því vel fyrir fjölbreyttan rekstur. Viðskiptavinir okkar eru ýmist með einn eða fleiri kassa í hverri verslun en Xpress eru engin takmörk sett hvað varðar fjölda kassa,“ segir Ívar. Vegna þess að Xpress er eiginlegur framendi á Uniconta og virkar eingöngu með bókhaldskerfinu Uniconta, þá er uppsetningin einföld og þægileg bætir Grétar við. „Því þarf ekkert sérstakt uppgjör í lok dags heldur er einungis tekin staða á peningum sem eiga að vera í kassanum. Kerfið vinnur á Windows stýrikerfinu og nýtir sér hefðbundinn búnað, svo sem snertiskjái, kvittanaprentara og peningaskúffu. Svar hefur veitt alhliða þjónustu til viðskiptavina og útvegað þeim bæði hugbúnaðinn Xpress og vélbúnað, t.d. tölvur, kvittanaprentara, lyklaborð, mús og peningaskúffu, fyrir þá viðskiptavini sem þess óska.“ Þeir segja Xpress vera einstaklega notendavænt. „Við hönnuðum söluferlið þannig að frá því að vara er stimpluð inn og þar til hún er seld út eru bara 2-3 klikk. Það er því auðvelt að læra á kerfið og byrja að selja. Að auki er einfalt fyrir notandann að breyta flýtivalinu og sérsníða kerfið að sínum þörfum.“ Eins og fyrr segir eru einu kröfurnar þær að vélbúnaðurinn sé með Windows 10/11 uppsettan á vélinni. „Það er stefnan að þróa Xpress þannig að það verði óháð stýrikerfi. Markmiðið er að Xpress muni virka á nánast hvaða vélbúnaði sem er í nánustu framtíð.“ Nánari upplýsingar á vef Svars.
Mest lesið Stúdentar taka til: Z-kynslóðin er að velja sér fyrirtæki framtíðarinnar Atvinnulíf Mikil óvissa í alþjóðamálum gæti reynt á þjóðarbúið Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Viðskipti innlent Salóme tekur við af stofnanda Ísorku Viðskipti innlent Segir útlitið svart fyrir sjávarútveginn og breytingarnar illa unnar Viðskipti innlent Kemur nýr inn í fjármálastöðugleikanefnd Viðskipti innlent Helgi ráðinn sölustjóri Viðskipti innlent Lýsa yfir verulegum áhyggjum af tvöföldun veiðigjalda Viðskipti innlent Aflinn verði verkaður annars staðar eftir breytingar stjórnarinnar Viðskipti innlent Macland gjaldþrota: „Bruninn fór með þetta“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Drægnikvíðastillandi dreki sem byggir á fornri frægð Bein útsending: Stafrænar lausnir í heilbrigðisþjónustu Greiðsluáskorun Lukkuhjól hlaðið vinningum á opnun Raflands Vetrarferð á verðlaunuðum rafbíl Iðnaðarhurðir sem henta íslenskum aðstæðum Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Slippfélagið eflir þjónustu með gervigreind Sjá meira