Ekki er vitað til þess að leitin hafi borið einhvern árangur en hún hefur staðið yfir undanfarna þrjá daga og var meðal annars leitað í lóninu og í skóglendi þar skammt frá ströndum lónsins, þar sem nokkrir pokar voru teknir á brott, samkvæmt frétt Sky News.
Þýskir lögregluþjónar leiddu leitina fyrr í vikunni var sagt að ákvörðun hefði verið tekin um að hefja leit á vegna tilteknar ábendingar. Yfirvöld í Þýskalandi tilkynntu árið 2020 að talið væri að McCann væri látin og að þýskur kynferðisglæpamaður að nafni Christian Brückner lægi undir grun.
Sjá einnig: Þýskur saksóknari segir leitina tengjast ábendingum um hvarf McCann
Sá er 45 ára maður sem bjó í Portúgal þegar McCann hvarf. Hann situr í fangelsi fyrir að nauðga 72 ára konu á svæðinu þar sem fjölskylda McCann var á sínum tíma.
Hann hefur áður verið dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn börnum. Árið 2020 var leitað á nokkrum stöðum í Þýskalandi sem tengdust honum. Þá sögðust þýskir saksóknarar hafa fundið vísbendingar um að Christian B hafi myrt Madeleine, en þær dugðu ekki til til að ákæra hann.
Lögregluþjónar frá Portúgal og Bretlandi komu einnig að leitinni.
Meðal annars sáust lögregluþjónar klippa niður runna, saga tré og raka jörðina í skóglendi við uppistöðulónið. Þá var einnig notast við litla gröfu.