Ajax endaði síðasta tímabil með 3-1 tapi gegn FC Twente. Þýddi það að liðið endaði í 3. sæti deildarinnar og komst ekki í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn síðan 2009. Eftir leik náðist myndband af Berghuis að slá til stuðningsmanns Twente þegar leikmenn Ajax voru á leið í liðsrútu sína eftir leik.
Ástæðan er sögð vera sú að aðdáandinn hafi verið með kynþáttaníð í garð Brian Brobbey, samherja Berghuis, og því hafi hann brugðist við líkt og hann gerði. Berghuis hefur beðist afsökunar á hegðun sinni: „Ég sé eftir þessu, hefði ekki átt að gera þetta,“ sagði meðal annars í yfirlýsingu leikmannsins.
Berghuis var þegar á leiðinni í eins leiks bann fyrir að hafa fengið gult spjald í leiknum gegn Twente. Nú hefur hollenska knattspyrnusambandið ákveðið að hann fái tvo leiki til viðbótar fyrir að slá til áhorfandans.
Í frétt BBC um málið kemur ekki fram hvort áhorfandinn sé kominn í lífstíðarbann fyrir að vera með kynþáttaníð í garð Brobbey.