„Amma mín, Gríma Thoroddsen, talar um veikindi sín og drauma í upphafsstefi plötunnar, Árfarvegir Lífsins. Mér þykir ótrúlega vænt um það, mér leið eins og hún hafi verið með mér í anda í gegnum þetta ferli og ég veit að hún er ein af mínum verndarenglum,“ segir Katrín en auk upphafsstefsins býr platan yfir þremur lögum.

Hér má heyra lagið Ljósið:
Allt breyttist í kjölfar ofsakvíðakasts
Fyrir rúmlega einu og hálfu ári fékk Katrín Myrra sitt fyrsta ofsakvíðakast og greindist í kjölfarið með felmtursröskun (e. panic disorder).
„Lífinu sem ég hafði þekkt var kippt undan mér og ég þurfti að læra upp á nýtt að lifa með miklum kvíða og vanlíðan, sem var ákveðið áfall fyrir mig. Ég var stelpan sem hafði aldrei upplifað erfiðleika í sambandi við geðheilsu og fannst alltaf gott að vera ein með hugsununum mínum og hélt að þetta gæti aldrei komið fyrir mig.“

Vonin besta vopnið
Hún segist hafa átt erfitt við að leita sér aðstoðar í byrjun.
„Vonleysið og skömmin sem ég upplifði við það að þurfa hjálp hvatti mig til þess að opna mig og semja tónlist um veikindin mín. Ég gat þó ekki hugsað mér að gera það fyrr en ég var komin með ágæta stjórn á kvíðanum, af því ég átti svo auðvelt með að triggerast.
Lagið Ljósið er tengt tímapunkti þar sem ég ákvað að treysta sjálfri mér og öðlaðist von um að ég gæti sigrað stríðið gegn ofsakvíða. Ég hélt fast í þessa von sem hefur leitt mig á betri stað í dag og ég trúi því að vonin sé besta vopnið, því það var það eina sem ég hafði á mínum erfiðustu tímum.“

Vill deila sögu sinni í von um að hjálpa öðrum
Katrín Myrra mun senda frá sér tónlistarmyndband við lagið á næstu vikum.
„Ég og kærastinn minn Kristján Ingólfsson erum búin að vera vinna að því saman og er ég ekkert smá spennt fyrir því.“
Hún segir einstaklega mikilvægt að opna stöðugt á umræðuna um andleg veikindi.
„Ég hef séð það í gegnum tíðina hvað heilbrigðiskerfið okkar hefur oft brugðist þeim sem eru andlega veikir og langaði mig að varpa ljósi á það. Það er mjög erfitt að vera andlega veikur og ég held að flestir sem hafa ekki upplifað það geti ómögulega skilið styrkinn sem þarf til þess að komast í gegnum það. Mig langaði því til að deila sögunni minni í von um að hjálpa öðrum.“
Käärijä á toppi Íslenska listans á FM
Käärijä situr staðfastur á toppi Íslenska listans á FM í þessari viku með finnska Eurovision lagið Cha Cha Cha. Eurovision stjarna okkar Íslendinga, Diljá, fylgir fast á eftir í öðru sæti með lagið Crazy og Emmsjé Gauti stekkur upp í þriðja sætið með Þjóðhátíðarlagið í ár, Þúsund hjörtu. Í spilaranum hér að neðan má hlusta á Íslenska listann í heild sinni:
Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á milli klukkan 14:00 og 16:00 á FM957.
Lög Íslenska listans:
Íslenski listinn á Spotify: