Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Fundurinn verður haldinn í kjölfar leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins í Vilníus dagana 11. til 12. júlí.
Í tilkynningunni segir að á fundinum verði rætt um samstarf Norðurlandanna og Bandaríkjanna á sviði öryggismála, umhverfismála og tækniþróunar. Um þriðja leiðtogafund Norðurlandanna og Bandaríkjanna er að ræða en fyrri fundir voru haldnir 2013 í Stokkhólmi og 2016 í Washington.
Sauli Niinistö, forseti Finnlands, er gestgjafi fundarins en auk hans munu Joe Biden, Katrínar Jakobsdóttir, Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, og Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, taka þátt í fundinum.