Mál hins 23 ára gamla Jakubs Polkowski sem missti húsið eftir að skuldir af fasteignatengdum gjöldum höfðu safnast upp hefur vakið mikla athygli. Jakub er öryrki og keypti húsið fyrir bætur sem hann fékk í kjölfar alvarlegra læknamistaka.
Einbýlið var selt á þrjár milljónir króna en er metið á 57 milljónir króna. Upphaflega stóð til að Jakub og fjölskylda hans yrði borin út úr húsinu þann 30. júní en þeim aðgerðum var nýlega frestað um rúman mánuð í samráði við nýjan eigenda.
„Það hafa nokkrir haft samband við mig og óskað eftir að borga þessar þrjár milljónir,“ segir Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs en RÚV greindi fyrst frá. Þrír til fjórir einstaklingar hafi persónulega haft samband og hugsanlega fleiri lofað fjármagni í yfirlýsingum á samfélagsmiðlum. Þá hafi aðrir einnig boðist til að aðstoða fjölskylduna með öðrum hætti.
„Það er ótrúlegt hvað fólk getur verið gott við fólk sem það þekkir ekki.“
Heildarkostnaður allt að sjö milljónir
Friðjón segir að hann hafi sett sig í samband við lögmann kaupanda hússins vegna þessa en lítið hafi verið um viðbrögð.
„Við höfum ekki fengið nein svör. Við höfum komið þeim upplýsingum á framfæri að við viljum skoða málin með kaupendunum en það er bara þar enn þá.“
Hann telur að heildarkostnaður kaupandans liggi á bilinu sex til sjö milljónir þar sem hann hafi til að mynda einnig greitt skuldir vegna fasteignagjalda, trygginga, vatnsveitu. Í ljósi þess að fleiri en einn einstaklingur hefur boðið fram þrjár milljónir króna telur Friðjón að hægt yrði að ná saman heildarupphæðinni ef málið nær einhverjum farvegi.
„Við viljum bara ná sambandi og sjá hvort það sé einhver möguleiki að fá húsið aftur.“
Vildi ekki draga söluna til baka
Fram hefur komið að kaupandinn sé útgerðarstjóri í Sandgerði en þegar fréttastofa ræddi við hann fyrir viku hygðist hann ekki draga kaupin til baka þrátt fyrir mikla umræðu og gagnrýni.
Framganga sýslumanns í málinu hefur verið gagnrýnd og kallað eftir því að bæjaryfirvöldum sé gert viðvart þegar erfið mál af þessu tagi komi upp svo hægt sé að bregðast fyrr við. Friðjón segir bæjarráð nú vera í góðu samtali við sýslumannsembættið.
„Við munum vinna saman þegar svona mál koma upp aftur. Það er alveg skýrt og ég hrósa sýslumanninum fyrir að sýna þann samstarfsvilja. Við munum gæta þess að svona geti ekki gerst aftur á okkar vakt.“
Friðjón segist þó engu geta svarað til um það hvað verður um hús Jakubs að svo komnu máli.
„Það er bara eitthvað sem við höldum áfram að vinna í og það verður bara að koma í ljós hvað muni gerast.“ Að óbreyttu verður fjölskyldan borin út í fyrstu vikunni í ágúst.