Bryndís Arna hættir ekki að skora og ÍBV vann fyrir norðan: Öll mörkin úr Bestu deildinni Smári Jökull Jónsson skrifar 10. júlí 2023 10:00 Katrín Ásbjörnsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Breiðablik gegn Keflavík. Vísir/Vilhelm Breiðablik og Valur deila áfram efsta sætinu í Bestu deild kvenna en 12. umferð deildarinnar lauk í gær.
Tólftu umferð Bestu deildar kvenna lauk í gær með tveimur leikjum. Breiðablik og Valur eru jöfn að stigum í efsta sæti deildarinnar en Þróttur og FH lyftu sér upp um sæti í efri hlutanum eftir sigra um helgina. Breiðablik vann þægilegan sigur á Keflavík þegar liðin mættust á Kópavogsvelli á laugardag. Katrín Ásbjörnsdóttir skoraði bæði mörk Blika í 2-0 sigri. Katla Tryggvadóttir og Sierra Lelii skoruðu mörk Þróttar í 2-0 sigri gegn Stjörnunni á útivelli á laugardag. Þróttur situr í 3. sæti deildarinnar eftir sigurinn en Stjarnan er í 6. sæti. Í Hafnarfirði vann spútniklið FH 1-0 sigur á Tindastóli. Esther Rós Arnarsdóttir skoraði eina mark leiksins í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Vandræði Selfyssinga halda áfram en liðið tapaði 3-0 á heimavelli gegn Val í gær. Bryndís Arna Níelsdóttir heldur áfram að spila vel en hún skoraði tvö mörk fyrir Val í leiknum. Þá gerði ÍBV góða ferð til Akureyrar og vann 2-0 sigur á Þór/KA. Olga Sevcova og Holly Oneill skoruðu mörk ÍBV sem lyfti sér upp úr fallsæti með sigrinum. Öll mörkin úr 12. umferð Bestu deildar kvenna má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Mörkin úr leik Breiðabliks og Keflavíkur Klippa: Mörkin úr leik Stjörnunnar og Þróttar R. Klippa: Markið úr leik FH og Tindastóls Klippa: Mörkin úr leik Selfoss og Vals Klippa: Mörkin úr leik Þór/KA og ÍBV
Íslenski boltinn Besta deild kvenna ÍBV Þór Akureyri KA Breiðablik Keflavík ÍF Stjarnan Þróttur Reykjavík Valur UMF Selfoss FH Tindastóll Mest lesið Snéru heim eins og rokkstjörnur og komust á súluna á Astró Fótbolti Köstuðu blysum en segja hina hafa hrækt og hellt bjór á leikmenn Handbolti Haaland yfirgaf völlinn á hækjum og í spelku Fótbolti Hópslagsmál í NBA og sjö hent úr húsi Körfubolti Lýsa miklum áhuga Arsenal á manninum sem Man. Utd þráir Enski boltinn Hafa engar áhyggjur af hugarfari Njarðvíkinga Körfubolti Búinn að skora gegn öllum en bíður enn eftir titli Fótbolti Vill hópfjármögnun fyrir Antony Fótbolti Dagskráin í dag: Úrslitakeppnin af stað Sport Tryggvi með rifu í vöðva og verður frá næstu vikur Körfubolti Fleiri fréttir Vill hópfjármögnun fyrir Antony Lýsa miklum áhuga Arsenal á manninum sem Man. Utd þráir Snéru heim eins og rokkstjörnur og komust á súluna á Astró Búinn að skora gegn öllum en bíður enn eftir titli Haaland yfirgaf völlinn á hækjum og í spelku Napólí heldur pressunni á toppliði Inter „Gerðum gott úr þessu“ Uppgjörið: Breiðablik - KA 3-1 | Breiðablik er meistari meistaranna Lewandowski með tvö og er á toppnum Cecilía fagnaði ótrúlegum sigri á toppliði Juventus Gleðifréttir fyrir Ísland: Glódís spilaði fyrir landsleikina mikilvægu Manchester City nokkuð þægilega í 4-liða úrslit Sætur sigur Alberts og félaga sem nálgast Meistaradeildarsæti Sjóðheitur Hilmir skoraði í fyrsta leik fyrir Viking Rashford lauk ævintýri Stefáns Teits og félaga Tók Ara þrjár mínútur að skora fyrsta markið Þættirnir um Arnar og Bjarka byrja í kvöld: „Þetta er búið að vera ævintýri“ Stefán Teit dreymir um bikarævintýri og Wembley Haaland sakaður um að meiða lukkudýrið Dagur Dan fagnaði eftir skelfileg mistök Tugþúsundir fögnuðu titlinum í Newcastle Stoppaði skyndisókn og stóð á haus Nottingham Forest í undanúrslit eftir vítaspyrnukeppni Sluppu naumlega með sigur gegn fallbaráttuliði Slæmt tap í fyrsta leik Freys Hlynur og Hjörtur byrjuðu báðir fyrsta leik eftir landsleikjahlé Elías fiskaði vítaspyrnu og Brynjólfur sá gult í dramatísku jafntefli Alfons og Willum spiluðu báðir í stórsigri gegn botnliðinu Erfið staða Ingibjargar og Hafrúnar en nýja liðið neitar að tapa Sigur Arnórs í fyrsta leik en áfram leiðindi hjá liði Mikaels og Bjarka Sjá meira