Messi á ærið verkefni fyrir höndum að rétta af skútuna hjá Inter en liðið situr á botni deildarinnar með 18 stig eftir 22 leiki og hefur ekki unnið leik síðan 13. maí. Síðan þá hefur liðið leikið ellefu leiki, gert þrjú jafntefli en tapað átta leikjum.
Líkt og í flestum stóru íþróttadeildunum í Bandaríkjunum falla engin lið svo að Messi er í það minnsta ekki á leið niður um deild þó honum takist ekki að snúa gengi liðsins við. Reiknað er með að Messi leiki sinn fyrsta leik fyrir Inter þann 21. júlí, á föstudaginn, þegar liðið mætir Cruz Azul í deildarbikarnum.
Leikurinn verður á heimavelli Inter í Fort Lauderdale í Flórída. Völlurinn tekur 18.000 manns í sæti alla jafna en 22.000 miðar eru í boði á leikinn að þessu sinni, og seljast þeir á svívirðilegu verði á svörtum markaði þessa dagana.