„Hlutverk Ólympíuleikanna er að sameina allan heiminn í friðsamlegri samkeppni,“ sagði Bach á hátíð í Saint-Denis í Frakklandi í gær. Tilefni hátíðarinnar er að eitt ár er í að leikarnir hefjist og voru opinberlega send út boð á Ólympíunefndir heimsins, þar á meðal til ÍSÍ, Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
„Í okkar viðkvæma heimi með átökum, sundrungu og styrjöldum þurfum við á þessu sameinandi afli að halda meira en nokkru sinni fyrr,”
„Ólympíuleikarnir verða alltaf að byggja brýr. Þeir mega aldrei reisa veggi.” sagði Bach enn fremur.
Hættulegt að setja tímaramma
206 Ólympíunefndir ríkja eiga aðild að IOC. 203 þeirra fengu boð um þátttöku á leikunum í gær. Þær þrjár sem skildar eru útundan eru Ólympíunefnd Gvatemala, sem er í banni, og Rússlands og Hvíta-Rússlands vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Til þeirra átaka vísar Bach með orðum sínum að ofan.
Enn hefur ekki verið ákveðið hvort að íþróttafólk frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi megi taka þátt undir hlutlausum fána.
„Þegar við höfum skýrari mynd þar munum við taka ákvörðun,“ segir Bach um það. Hann segir að IOC muni ekki setja sér ákveðinn tímaramma, eða frest, til að ákveða slíkt. Það geti boðið hættunni heim.
„En við munum ekki setja ákveðinn frest vegna þess að ef við myndum setja frest gætum við staðið frammi fyrir aðstæðum þar sem allir haga sér fram að frestinum, og síðan fari allt úr böndunum strax og hann er liðinn.“ segir Bach.
Það er hins vegar búist við því að ákvörðun um slíkt verði tekin á þingi IOC í Mumbaí í október.