Keppti fyrir hönd fjölfatlaðrar systur sinnar Íris Hauksdóttir skrifar 5. september 2023 07:01 Lilja Sif Pétursdóttir nýkjörin Ungfrú Ísland. Vilhelm/Vísir Lilja Sif Pétursdóttir sigraði keppnina Miss Universe Iceland fyrir skemmstu. Hún er elst í sex systkina hópi en ein af systrum hennar er fjölfötluð sem er ástæða þess að Lilja starfar í dag á hjúkrunarheimili. Í framtíðinni dreymir Lilju um að geta hjálpað þeim sem minna mega sín.
Lilja Sif starfar á hjúkrunarheimilinu Eir en samhliða stundar hún sjúkraliðanám. Hún stefnir á að fara síðar í háskóla og læra þaðan hjúkrunarfræði. Lilja Sif segir undirbúninginn fyrir keppnina hafa verið stórskemmtilegur.Vilhelm/Vísir „Ég var alltaf í ballett sem barn,“ segir Lilja og heldur áfram. „Ég var líka í fimleikum og fannst gaman að prófa nýjar íþróttir.“ Vissi að þetta væri upplifun sem mig langaði að gera Spurð hvers vegna hún hafi ákveðið að taka þátt í keppninni nefnir Lilja systur sína. „Ég ólst upp með systur minni sem er fjölfötluð og það hefur haft mjög mikil áhrif á það hver ég er í dag. Hún er ástæðan afhverju mig langaði að taka þátt í keppninni og sömuleiðis ástæða þess að mig hefur alltaf langað að hjálpa fólki og vinna við umönnun fólks. Lilju Sif dreymir um að hjálpa fólki í framtíðinni.Vilhelm/Vísir Hún hefur líka hjálpað mér að sjá það að maður þarf alls ekki að vera heilbrigður til þess að vera ánægður. Ég ákvað að taka þátt í keppninni þegar ég sá það að keppnin væri um það að vera maður sjálfur, standa með sjálfum sér og sínum skoðunum. Þá vissi ég að þetta væri eitthvað sem að mig langaði að upplifa og gera.“ Fljót að finna rétta kjólinn Þegar talið berst að undirbúningnum segir Lilja hann hafa verið stórskemmtilegan. Lilja Sif Pétursdóttir vissi strax að þátttaka í keppninni væri eitthvað sem hún þyrfti að prófa.Vilhelm/Vísir „Allt ferlið í tengslum við keppnina hefur verið eitt af því skemmtilegasta sem ég hef gert og mun aldrei gleyma því. Það var svo geggjað að kynnast öllum stelpunum og fara á æfingar og læra eitthvað nýtt. En að sama skapi var þetta líka krefjandi. Ég fann alveg fyrir stressi á köflum en engu að síður frábær upplifun. Lilja Sif segir keppnina hafa verið erfiða en fyrst og fremst skemmtilega. Vilhelm/Vísir Ég var til að mynda mjög fljót að finna rétta kjólinn fyrir kvöldið. Ég var búin að skoða kjóla í sirka tuttugu mínútur áður en ég sá þann sem ég valdi. Um leið og ég sá hann þá vissi ég að þetta væri kjóllinn minn.“ Leiðir neikvæðar raddir hjá sér Lilja segir þó úrslitin hafa komið sér gríðarlega á óvart. „Mér fannst við allar eiga það skilið að vinna. Ég var alls ekki að búast við því að ég myndi hampa titlinum en ég gæti ekki verið ánægðari.“ Lilja Sif bjóst ekki við að vinna en segist ekki geta verið ánægðari með sigurinn.Vilhelm/Vísir Hávær umræða spannst í kjölfar keppninnar vegna lokaspurninga sem þátttakendur stóðu frammi fyrir að svara á ensku. Sjálf segist Lilja ekki hafa orðið vör við neikvæða gagnrýni. „Ég hef fengið mjög mikla jákvæða athygli eftir keppnina og það er ótrúlegt að sjá hvað það eru margir þarna úti sem sýna stuðning. Vissulega koma einstaka neikvæðar athugasemdir fyrir en ég leiði þær alfarið hjá mér. Fyrir mig er nóg að vita hvar ég stend og svo er auðvitað hitt, að allir hafa rétt á sínum skoðunum. Lilja Sif er sannarlega glæsilegur fulltrúi Íslands.Vilhelm/Vísir Þetta voru mjög krefjandi spurningar en við áttum líka von á því. Á æfingunum voru lagðar sambærilegar spurningar fyrir okkur svo við vissum við hverju við máttum búast.“ Engin útlitspressa Lilja segist hafa fyrst og fremst verið spennt fyrir kvöldinu þó örlítill kvíði hafi líka látið á sér kræla. „Mér fannst svo gaman að geta sýnt allt sem við vorum búnar að æfa yfir sumarið. Ég undirbjó mig aðallega með því að borða vel og drekka vel fyrir kvöldið.“ Lilja Sif undirbjó sig fyrir stóra kvöldið með góðri næringu.Vilhelm/Vísir Spurð hvort hún hugsi mikið um matarræðið segir Lilja svo ekki vera. „Ég borða allt sem mig langar í, þegar mig langar í það og hef ekki fundið neina útlitspressu í gegnum þetta ferli.“ Spennandi tímar framundan En hvað tekur nú við? „Nú er það heilt ár af skemmtilegri reynslu og stórum verkefnum sem ég get ekki beðið eftir að takast á við. Fyrsta ferðalagið er núna í september þar sem við Manuela Ósk Harðardóttir, framkvæmdarstýra keppninnar ferðumst um Bandaríkjunum. Framundan hjá Lilju Sif eru spennandi ferðalög.Vilhelm/Vísir Miss Universe, aðalkeppnin fer svo fram í El Salvador í nóvember. Framtíðardraumurinn er að verða hjúkrunarfræðingur og vinna við að hjálpa fólki. Eins langar mig að starfa með fötluðum einstaklingum í framtíðinni, það væri draumurinn.“
Tímamót Miss World Iceland Tengdar fréttir Lilja Sif Pétursdóttir valin Ungfrú Ísland Ungfrú Ísland var haldin í áttunda sinn í kvöld í Gamla bíó. Keppnin var ein sú glæsilegasta þar sem keppendur skinu sem glitrandi stjörnur á sviðinu. 16. ágúst 2023 23:08 Mest lesið Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Lífið Ísrael sendir kvörtun til EBU Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Lífið Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Lífið Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Lífið Í kossaflensi á Beyoncé Lífið Arnar og Sara gáfu syninum nafn Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Fleiri fréttir Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Bók skilað eftir 56 ára útlán Hugmyndir fyrir mæðradaginn Bakaríið í beinni útsendingu Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Hilmir Snær og Vala eiga von á stúlku Stjörnufans í sumarselskap Sjá meira
Lilja Sif Pétursdóttir valin Ungfrú Ísland Ungfrú Ísland var haldin í áttunda sinn í kvöld í Gamla bíó. Keppnin var ein sú glæsilegasta þar sem keppendur skinu sem glitrandi stjörnur á sviðinu. 16. ágúst 2023 23:08