Kona sem var handtekinn á vettvangi málsins, er nú grunuð um að hafa orðið honum að bana.
Maðurinn, sem var á sextugsaldri, fannst meðvitundalaus í íbúð fjölbýlishúss í austurborginni laugardaginn 23. september. Lögreglan fékk tilkynningu um manninn og reyndi endurlífgun á honum, en hann var úrskurðaður látinn við komu á sjúkrahús.
„Í upphafi var bara mjög óljóst með hvaða hætti maðurinn hefði látist, en nú eru vísbendingar um að honum hafi verið ráðinn bani,“ segir Ævar í samtali við Vísi og útskýrir að krufning hafi leitt þessar vísbendingar í ljós.
DV greindi fyrst frá því að konan væri nú grunuð um að hafa orðið manninum að bana, en þegar hún var fyrst handtekin var það sagt á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Núverandi gæsluvarðhaldsúrskurður rennur út á morgun. Aðspurður um hvort krafist verði frekara gæsluvarðhalds á hendur konunni segir Ævar við Vísi að það muni koma í ljós á morgun.
„Það er mikið sem þarf að vinna í þessu máli, mörg gögn sem þarf að afla og margar skýrslur sem þarf að taka. Við erum alveg á fullu í því að rannsaka þetta mál,“ segir hann.