Skoðun

Viljum við gráa framtíð?

Snæbjörn Guðmundsson skrifar

Í dag heldur Landsvirkjun sinn árlega haustfund undir slagorðinu „Leyfum okkur græna framtíð“. En hver er þessi græna framtíð sem Landsvirkjun vill leyfa sér?

Er það græn framtíð að tala fyrir og nota raforkuspár hagsmunaaðila í orkuiðnaði, sem gera ráð fyrir meira en tvöföldun raforkukerfis mestu raforkuframleiðsluþjóðar heims?

Er það græn framtíð að umturna í nafni orkuskipta ósnortinni náttúru, sem verður sífellt verðmætari og fágætari í heiminum, í stað þess að ráðstafa núverandi raforkuframleiðslu á annan og skynsamlegri hátt?

Er það græn framtíð að taka virkjunarframkvæmdir fram yfir líffræðilegan fjölbreytileika og heilbrigð vistkerfi?

Er það græn framtíð að selja orku í bitcoin og orkufrek gagnaver?

Er það græn framtíð að auka raforkusölu til stórnotenda en hræða samtímis almenning með hótunum um skert raforkuöryggi?

Er það græn framtíð að eyðileggja laxastofninn í Þjórsá með stórvirkjunum í byggð?

Er það græn framtíð að kljúfa viðkvæm samfélög á fyrirhuguðum virkjunarsvæðum?

Er það græn framtíð að reisa jarðhitavirkjun í Bjarnarflagi, með stórfelldri hættu á grunnvatnsmengun í aðeins þriggja kílómetra fjarlægð frá Mývatni, einu merkasta stöðuvatni jarðar?

Er það græn framtíð að nota ótæpilegt magn af sementi í stöðvarhús, stíflur og undirstöður vindmylla með tilheyrandi losun gróðurhúsalofttegunda?

Er það græn framtíð að leggja jökulár Skagafjarðar í rúst?

Er það græn framtíð að selja núverandi orkufrekri stóriðju enn meiri orku?

Er það græn framtíð að skerða óbyggð víðerni hálendisins og spilla með vindorkuverum?

Er það græn framtíð að vilja virkjanir í Stóru-Laxá og Hólmsá?

Er það græn framtíð að tala aldrei nokkurn tímann fyrir minni ágangi á náttúruna eða sátt við hana?

Er það græn framtíð að reisa miðlun neðst í Þjórsárverum og skrúfa þannig fyrir fossa Þjórsár?

Er það græn framtíð að telja sig verða að bregðast endalaust við ásókn óseðjandi stórnotenda í „græna“ orku?

Er það græn framtíð að halda áfram á nákvæmlega sömu stórvirkjanabraut og fylgt hefur verið í meira en hálfa öld?

Verður framtíðin í huga Landsvirkjunar „grænust“ þegar allt hefur verið virkjað?

Hlutverk Landsvirkjunar

Landsvirkjun er opinbert fyrirtæki, í eigu þjóðarinnar og með sérhæft og vel menntað starfsfólk á öllum sviðum orkufyrirtækjareksturs, ekki einungis á sviði nývirkjunarframkvæmda. Hlutverk þess í lögum er „að stunda starfsemi á orkusviði“. Landsvirkjun gæti rækt hlutverk sitt af sóma um alla framtíð án þess að reisa nokkurn tímann aftur virkjun með óafturkræfum og skaðlegum áhrifum á náttúruna, það dýrmætasta sem okkur hefur verið trúað fyrir.

Stefnir Landsvirkjun á raunverulega græna framtíð eða er framtíðarsýnin kannski steypugrá og líflaus?

Höfundur er jarðfræðingur og formaður Náttúrugriða.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×