Skoðun

Hvers vegna er munur á niður­stöðum losunar­bók­halds Um­hverfis­stofnunar og Hag­stofu Ís­lands?

Rafn Helgason, Þorsteinn Aðalsteinsson og Fífa Jónsdóttir skrifa

Umhverfisstofnun og Hagstofa Íslands halda hvor um sig bókhald um losun gróðurhúsalofttegunda. Umhverfisstofnun tekur saman losun innan landamæra Íslands en Hagstofan frá hagkerfi Íslands.

Hver er munurinn?

Bókhald Umhverfisstofnunar um losun frá landsvæði er skrásett út frá landfræðilegu tilliti og einskorðast ekki við Íslendinga.

Bókhald Hagstofunnar um losun frá hagkerfi Íslands snýr að losun frá íslenskum fyrirtækjum og einstaklingum, hvar sem þeir eru í heiminum. Tilgangur þess er því að meta losun út frá atvinnugreinum í hlutfalli við fjölda starfsfólks, veltu og skattagreiðslur atvinnugreinana.

Hvernig flokkast losunin?

Losunarbókhald Hagstofu Íslands tekur inn alla flutninga milli landa (sem eru reknir af íslenskum flugfélögum og skipafélögum). Alþjóðasamgöngur, óháð því hvar fyrirtæki eru skráð, eru eingöngu teknar inn í losunarbókhald Umhverfisstofnunar þegar umrædd félög kaupa eldsneyti á Íslandi.

Losun sem á sér stað þegar erlendir ferðamenn aka um landið, eða þegar togarar sem eru í rekstri erlendra félaga veiða í íslenskri lögsögu er ekki inni í bókhaldi Hagstofu Íslands. Hins vegar er þessi losun inni í losunarbókhaldi Umhverfisstofnunar, í þeim tilfellum þar sem umræddir aðilar kaupa eldsneyti á Íslandi.

Bókhald Umhverfisstofnunar innifelur losun og bindingu sem á sér stað vegna landnotkunar og skógræktar. Þessi losun er ekki tekin inn í losunarbókhald Hagstofu Íslands þar sem landsvæði telst ekki vera hluti af hagkerfinu.

Þurfum við hvort tveggja?

Útreikningar á losun gróðurhúsalofttegunda með aðferðunum tveimur sýna ólíkar niðurstöður sem eru þó báðar réttar. Að skoða eingöngu annað bókhaldið segir bara hálfa söguna.

Hvar eru tölurnar birtar?

Niðurstöður losunarbókhalds Umhverfisstofnunar eru settar fram árlega í Landsskýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda (e. National Inventory Report (NIR)).

Losunarbókhald Umhverfisstofnunar fellur undir rammasamning Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (UNFCCC). Öll aðildarríki þessa samnings skila inn slíku bókhaldi. Bókhaldið er forsenda uppgjörs skuldbindinganna sem Ísland hefur gagnvart Evrópusambandinu og Sameinuðu þjóðunum vegna Parísarsamningsins.

Ríki sem tilheyra Evrópska efnahagssvæðinu skila bókhaldi um losun frá hagkerfi (e. Air Emission Accounts (AEA)) til Hagstofu Evrópusambandsins (e. Eurostat).

Þessu bókhaldi fylgja engar beinar alþjóðlegar skuldbindingar en Evrópuþingið hefur nýtt þessa reikninga til grundvallar lagasetningar þar sem reikningarnir tengjast öðrum efnahagsreikningum, svo sem landsframleiðslu og atvinnutölfræði.

Höfundar þessarar greinar eru Rafn Helgason, Þorsteinn Aðalsteinsson og Fífa Jónsdóttir, sérfræðingar Umhverfisstofnunar, Hagstofunnar og Landgræðslunnar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×