Fyrir leikinn í gær hafði íslenskt A-landslið í fótbolta nefnilega aldrei náð að vinna Danmörku á danskri grundu.
Karlalandsliðið er reyndar án sigurs á móti Dönum, sama hvar hefur verið spilað í heiminum, en kvennalandsliðið hafði aldrei áður náð að fagna sigri í Danmörku.
Stelpurnar okkar voru samt að vinna danska landsliðið í þriðja sinn í gær en báðir hinir sigrarnir komu á Algarve mótinu í Portúgal, annar árið 2011 en hinn árið 2016.
Þetta var þriðji leikur kvennalandsliðsins á móti Dönum í Danmörku en hinir leikirnir enduðuu með 1-1 jafntefli og 2-0 tapi.
Það er aftur á móti mun ljótari lestur að skoða árangur karlalandsliðsins á móti Danmörku á danskri grundu. Allir níu leikirnir hafa tapast og markatalan er 29 mörk í mínus eða 5-34.
Þar munar vissulega mikið um frægasta tapið sem kom í fyrsta leik íslensks A-landsliðs í fótbolta á danskri grundu.
Danir unnu 14-2 sigur á Íslandi á Parken 23. ágúst 1967. Síðan þá höfðu íslensku A-landsliðin leikið tíu leiki í Danmörku án þess að vinna. Þar til í Viborg í gærkvöldi.
Karlalandsliðið hefur skorað í síðustu tveimur leikjum sínum í Danmörku og þeir hafa báðir tapast með minnsta mun. Þetta voru fyrstu mörk karlanna á danskri grundu síðan árið 1974 en fram að þeim höfðu 67% marka Íslands á móti Dönum í Danmörku komið í fræga 14-2 tapinu.
- Löng bið
- Fyrir leikinn í gær höfðu íslensk A-landslið, karla eða kvenna, spilað ellefu sinnum á danskri grundu, tíu leikir höfðu tapaðst og sá ellefti endaði með jafntefli. Markalatan var 6-37 Dönum í vil.