Skoðun

Bréf til jóla­sveinsins

Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar

Kæri Jóli.

Ég hef heyrt því fleygt að þú sért góður gæi og til í að aðstoða fólk með hvers konar. Minn jólaóskalisti í ár er langur og mikill að vöxtum sem endranær. Ég hef skrifað alþingismönnum og jafnvel ráðherrum nokkrum sinnum en þeir hljóta að láta það sem um norðanvind um eyru þjóta, já og bara með hvelli, því stundum segjast þeir hafa skilning á aðstæðum mínum og kjörum en ekkert gerist. Þeir geta meira að segja komið sér saman um hvað lögin í raun og veru þýða, eins og 62. gr. laga um almannatrygginga nr. 100/2007 um hækkun lífeyris. Því vildi ég freista þess að fá lánuð eyrun þín og þú myndir kannski reyna að básúna út boðskapinn á Íslandi á ferðum þínum fyrir jólin. Fólk hlustar þegar þú talar. Þú gætir jafnvel orðið einhvers konar sendiherra öryrkja á Íslandi!

Mig langar að segja þér frá könnun sem Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins, í samstarfi við ÖBÍ réttindasamtök gerði nýlega á lífskjörum og líðan þeirra sem voru með örorku-og endurhæfingalífeyrisréttindi og/eða örorkuststyrki hjá TR í október. Markmið könnunarinnar var að varpa ljósi á stöðu hópsins á mismunandi sviðum. Hér er aðeins brotabrot af því sem sem ég vil að þú vitir og er tekið úr niðurstöðum skýrslunnar, svo það sé alveg örugglega á hreinu hvar skórinn kreppir.

Vissir þú að nær 9 af hverjum 10 einhleypum foreldrum getur ekki mætt óvæntum útgöldum og fjórðungur þeirra hafa þurft mataraðstoð á síðasta ári.

Vissir þú að 54% einhleypra foreldra getur ekki gefið börnunum sínum afmælis- og/eða jólagjafir sökum fjárskorts.

Vissir þú að nær helmingur hefur efni ekki efni á árlegu fríi með fjölskyldunni.

Vissir þú að 7 af hverjum 10 einhleypum foreldrum hafði fengið aðstoð frá vinum og ættingjum í formi peninga- eða matargjafa.

Vissir þú að tæplega helmingur einhleypra foreldra getur hvorki veitt börnum sínum nauðsynlegan klæðnað, greitt kostnað vegna félagslífs barna sinna eða haldið afmæli eða veislur fyrir börn sín.

Kæri jóli. Finnst þér þetta ekki óhæfa? Viltu færa islenskum stjórnvöldum þessi skilaboð og hreinlega heimta að þau gefi okkur eitthvað betra í skóinn, lesist: Að búa betur að öryrkjum. Fátækt er í eðli sínu pólitísk.

Þinn vinur

Öryrkinn.

Höfundur er kennari, blaðamaður og öryrki. 




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×