Þetta kemur fram í niðurstöðum Global Talent Competitiveness Index (GTCI) fyrir árið 2023 en listinn er unnin af franska viðskiptaháskólanum INSEAD. Euronews greinir frá.
Sviss hefur verið í efsta sæti á listanum undanfarin áratug en þar spila inn í rífleg laun, pólitískur stöðugleiki og sterk félagshagfræðileg staða landsins.

Singapúr skorar hátt þegar kemur skipulegri menntun, atvinnutækifærum og nýsköpunarhagkerfi. Þá standa Bandaríkin sig vel þegar kemur að framboði að háskólamenntun á heimsmælikvarða og stuðningi hvað varðar símenntun.
Rannsóknin nær yfir 134 lönd víðsvegar um heiminn. Fyrir utan fyrrnefndu ríkin þrjú verma Danmörk, Holland, Finnland, Noregur, Ástralía, Svíþjóð og Bretland tíu efstu sætin á listanum.
Ísland er í fimmtánda sæti á listanum en fram kemur að frammistaða Íslands, Lúxemborgar og Bretlands hafi hrakað umtalsvert á undanförnum áratug. Frammistaða Ástralíu og Noregs hefur hins vegar batnað til muna.
Á heimsvísu hafa Albanía, Indónesía og Azerbajdzhan náð mestum framförum í að laða að sér hæfileikafólk undafarin tíu ár.
Fram kemur í niðurstöðum rannsóknarinnar að á næstu tíu árum muni samkeppnin um hæfileikafólk harðna verulega, samhliða því að starfsumhverfið mun halda áfram að þróast. Framfarir í tækni á borð við gervigreind, vaxandi hagkerfi og auknar lífsgæðakröfur yngri kynslóða hafa þar veruleg áhrif.