„Þetta gekk nú bara þokkalega vel og flestar sveitir eru sáttar við söluna,“ segir Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, starfandi formaður Landsbjargar.
„Það er ekki hægt að segja að það hafi verið gígantísk aukning, en þetta var meira en í fyrra,“ segir Borghildur. Slysavarnafélagið Landsbjörg eigi eftir að taka saman sölutölur en muni að venju ekki birta þær opinberlega.
Gott veður á höfuðborgarsvæðinu
Aðspurð um hvað hafi valdið söluaukningunni nú segir Borghildur Fjóla að veðrið kunni að hafa sitt að segja.
„Það er ekki gott að segja. Það var ágætis veður á höfuðborgarsvæðinu og svo hafa verkefnin verið mörg og stór sem kunni að hafa haft áhrif á að fólk hafi frekar vilja styðja okkur. Við erum að minnsta kosti mjög þakklát.“
Minni umræða um mengun af völdum flugelda
Athygli vakti dagana áður en 2022 gekk í garð þegar Umhverfisstofnun réðst í átak þar sem landsmenn voru hvattir til að sleppa flugeldum alveg eða stilla notkun þeirra verulega í hóf. Var bent á að flugeldar væru aldrei umhverfisvænir eða skaðlausir og að þörfin fyrir flugelda færi minnkandi með nýjum hugsunarhætti.
Borghildur Fjóla segir að þessi umræða hafi ekki verið eins áberandi að þessu sinni, en bendir á að björgunarsveitirnar geri sér fulla grein fyrir því að flugeldar séu ekki umhverfisvænir.
„Við vitum alveg að flugeldar menga og það verður svifrykstopppur á þessum tíma. En við höfum reynt að minnka plastið og svo eru engir þungmálmar eftir í flugveldum. En flugeldarnir menga og búa til svifryk og eru erfiðir fyrir þá sem eru veikir fyrir. Við reynum því öll að takmarka tímann þar sem flugeldar eru skotnir upp.“