Morant missti af fyrstu 25 leikjum tímabilsins vegna banns sem hann var dæmdur í fyrir að veifa byssu í myndbandi á samfélagsmiðlum.
Leikstjórnandinn sneri aftur 19. desember og lék níu leiki með Memphis. Það verða einu leikir hans með liðinu í vetur því hann er á leið í aðgerð á öxl eftir að hafa meiðst á æfingu á laugardaginn. Morant snýr ekki aftur á völlinn fyrr en á næsta tímabili.
Í leikjunum níu sem Morant spilaði í vetur var hann með 25,1 stig, 5,6 fráköst og 8,1 stoðsendingu að meðaltali. Memphis vann sex af níu leikjum með Morant í liðinu.
Grábirnirnir eru í þrettánda og þriðja neðsta sæti Vesturdeildarinnar með þrettán sigra og 23 töp.