Vísir fjallaði um niðurstöðu kærunefndarinnar í gær. Þar kom fram að karlmaður, kennari við LHÍ, hefði sótt um stöðuna, ekki fengið og verið ósáttur. Talið sig standa konunni sem var ráðin framar og að ekki hefði verið staðið rétt að ráðningunni.
Kærunefndin komst að þeirri niðurstöðu að brotið hefði verið á umsækjendum og þar með á jafnréttislögum vegna þess að ekkert benti til þess að rektor LHÍ hefði komið að ráðningarferlinu eins og ferlið ætti að vera samkvæmt reglum Listaháskólans.
Tvær nefndir skipaðar
Ráðningin átti sér stað árið 2022 þegar Fríða Björk Ingvarsdóttir var rektor. Síðan þá er Kristín Eysteinsdóttir, fyrrverandi Borgarleikhússtjóri, tekin við rektorsstöðunni. Í tilkynningu frá LHÍ til fréttastofu eru gerðar athugasemdir við niðurstöðu kærunefndar.

Óumdeilt sé að rektor LHÍ beri ábyrgð á öllum ráðningum innan háskólans, samkvæmt þeim reglum sem háskólinn hefur sett sér sem hluta af gæðastarfi háskólans.
„Umrætt ráðningarferli var með þeim hætti að óháð hæfisnefnd mat hæfi allra umsækjenda um þetta tiltekna starf. Þeir sem um ræðir, kærandi og sá einstaklingur sem ráðinn var, voru bæði talin hæf samkvæmt gögnum hæfisnefndar. Eftir það tók við ráðningarnefnd, skipuð utanaðkomandi aðila af fagvettvangi, forseta viðkomandi deildar og sviðsforseta. Nefndin tók ráðningarviðtöl við þá umsækjendur sem metnir voru hæfir. Frammistaða þeirra var skráð á stöðluð matsblöð í viðtölunum og var það mat ráðningarnefndar að sá umsækjandi sem hlaut starfið væri hæfust,“ segir í tilkynningu frá LHÍ.
Rektor fengið öll gögn
Að þessu ferli loknu hafi þáverandi rektor fengið í hendur öll gögn og upplýsingar um það sem fram kom í viðtölum.
„Rektor átti jafnframt ítarlegt samtal við sviðsforseta og deildarforseta og samþykkti að því loknu tillögu þeirra að ráðningu þess sem ráðningarnefndin lagði til. LHÍ telur að ekki hafi verið gætt að því að hálfu kærunefndarinnar að afla afstöðu skólans og gagna sem snúa að aðkomu rektors að málinu.“
Þá vill LHÍ að lokum árétta að kyn umsækjenda hafi engin áhrif haft á ráðningu í starfið, heldur byggst á málefnalegum sjónarmiðum í takt við þarfir og faglega sýn skólans.