Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Fannhvít jörð og hvassviðri
Hlaupadrottningin Mari Jaersk skellti sér í heita pottinn í hvassviðrinu um helgina.
Elísabet Gunnars var ánægð með gærdaginn sem einkenndist af sól, samveru og útiveru.
Hildur Sif Hauksdóttir klæddi sig í stíl við umhverfið. Fannhvít jörð og hvítt dress.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra skellti sér í reiðtúr í blíðvirðinu í gær.
Brynja Dan Gunnarsdóttir, varaþingmaður Framsóknar í Garðabæ og eigandi Extraloppunnar, var svartklædd og töff snjónum.
Grammy-verðlaunin
Stórtíðindi liðinnar viku var án efa í gærkvöldi þegar tveir Íslendingar voru tilefndir til Grammy-verðlaunna, Laufey Lín Jónsdóttir fyrir breiðskífuna Bewitched og Ólafur Arnalds plötuna sína Some Kind of Peace í flokki nýaldartónlistar.
Laufey bar sigur úr bítum og hlaut Grammy-verðlaun í flokki hefðbundinnar popptónlistar.
Gellur gera vel við sig
Vinkonurnar og áhrifavaldarnir Sunneva Einars og Jóhanna Helga Jensdóttir gerðu vel við sig og fóru út að borða í óveðrinu.
Lilja Gísladóttir, áhrifavaldur og talskona jákvæðrar líkamsýmindar, skellti sér í dögurð með vinkonum sínum og skálaði í espresso-martini um helgina.
Þorrablót Grindvíkinga
Skemmtikraftarnir Eva Ruza Miljevic og Hjálmar Örn Jóhannesson skemmtu Grindvíkingum á Þorrablóti um helgina. Eva klæddist glæsilegum gulum síðkjól með gular neglur í stíl.
„Ég fékk margoft gæsahúð og smá kökk í hálsinn. Svo fallegt að sjá þau saman,“ skrifar Eva meðal annars um viðburðinn.
Anfield-draumur
Tónlistarmaðurinn og Idol-dómarinn Herra Hnetusmjör skrapp til London á leik Liverpool gegn Chelsea á Anfield leikvangnum í vikunni.
Fyrsta afmælið
Ástrós Traustadóttir fagnaði eins árs afmæli dótturinnar Nóru Náðar um helgina. Veislan var glæsileg eins og við var að búast.
Júlí og PBT í eina sæng
Úrslitin nálgast óðfluga í Idol og eru aðeins fimm dagar þar til næsta Idol-stjarna Íslands verður krýnd í Idolhöllinni að Fossaleyni.
Júlí Heiðar Halldórsson og Patrik Atlason, þekktur sem Prettyboitjokkó, sameina krafta sína í nýju lagi og frumsýna lagið á úrslitakvöldi Idol næstkomandi föstudag.
Skemmtilegri vinnudagur
Pattra Sriyanonge, markaðsstjóri og ofurskvísa, skemmti sér með samstarfsfélögum sínum í myndatöku fyrir verslunina Sjáðu.
Telja niður dagana
Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri og raunveruleikastjarna, telur niður dagana í frumburð hennar og Enoks Jónssonar. Drengurinn er væntanlegur í heiminn á næstu dögum.
Edrúar-febrúar
Athafnakonan og hlaðvarpsstjarnan Sylvía Briem Friþjónsdóttir skorar á fólk að skála í óáfengum drykkjum í febrúar. „Edrúar febrúar“ er herferð sem á að hvetja Íslendinga til þess að sleppa neyslu áfengis í þessum mánuði.
Þjófstartar bolludeginum
Eva Laufey Kjaran matgæðingur þjófstartaði bolludeginum og töfraði fram stórkostlegt hlaðborð með ólíkum tegundum af bollum.