Borðspilahátíðin, sem fer fram á Hótel Hvolsvelli hófst í gær og stendur fram á morgundaginn. Fimmtíu þyrstir spilaeinstaklingar eru á staðnum og spila stanslaust frá morgni til kvölds allskonar spil. Hilmar Kári Hallbjörnsson hjá borðspil.is stendur fyrir hátíðinni.
„Þetta er bara hugmynd, sem við fengum fyrir þremur árum síðan, ákváðum að láta vaða þá í miðju Covid og þetta er þriðja árið í röð, sem við höldum hátíðina,” segir Hilmar Kári.
Og hvers konar spil er verið að spila?
„Þetta eru mikið til hobbí spil og þetta eru mikið til spil í þyngri kantinum en samt er verið að spila allt frá „Catan og Ticket” og upp úr.”

Hilmar segir mikinn áhuga á borðspilum á Íslandi og að hann fari vaxandi með hverju ári en félagsskapurinn skipti þar höfuðmáli, að spila með skemmtilegu fólki, sé ótrúlega skemmtilegt og gefandi.
„Þetta er alveg rosalega stór og mikill heimur, miklu stærri en fólk gerir sér í raun og veru fyrir. Það eru gefin út á milli þrjú og fjögur þúsund spill á hverju ári. Þetta er alveg ótrúlegur heimur og eins og ég segi, ég byrjaði og datt inn í þetta hobbí árið 2018 og átti þá þrjú spil og var svona að prófa að dýfa stóru tánni ofan í þetta og núna á ég 903 spil,” segir Hilmar Kári um leið og hann hvetur áhugasama að reka inn nefið á Hótel Hvolsvöll um helgina og sjá þátttakendur spila á borðspilahátíð helgarinnar.
