AC Milan máttu síns lítils gegn Monza Siggeir Ævarsson skrifar 18. febrúar 2024 22:04 Oliver Giroud skoraði í kvöld EPA-EFE/MATTEO BAZZI AC Milan gerði ekki góða ferð til nágranna sinna í Monza í kvöld en heimamenn fóru með 4-2 sigur af hólmi þar sem framherjinn Luka Jovic sá rautt.
Monza komst í 2-0 í fyrri hálfleik og virtust gestirnir frá Mílanó vera heillum horfnir. Ekki skánaði staða þeirra á 52. mínútu þegar Luka Jovic fékk beint rautt spjald fyrir að slá til varnarmanns. Þetta atvikt virtist þó mögulega blása gestunum einhvern eldmóð í brjóst og á 62. mínútu minnkaði Oliver Giroud muninn og Christian Pulišić jafnaði metin skömmu áður en venjulegur leiktími rann út, á 88. mínútu. Þarna vonuðust Mílanó-menn kannski eftir því að vera búnir að bjarga andlitinu úr vondri stöðu en skömmu síðar kom Warren Bondo Monza yfir á ný. Það var leikmaður AC Milan sem lagði upp markið, Daniel Maldini, en hann er á láni frá AC Milan og þetta var aðeins hans annar leikur fyrir Monza. Lorenzo Colombo setti svo síðasta naglann í kistu gestanna undir lok uppbótartímans. AC Milan misstu þarna af gullnu tækifæri til að setjast í 2. sæti Seríu A en liðið er tveimur stigum á eftir Juventus sem gerði 2-2 jafntefli við Verona fyrr í dag.
Mest lesið Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Íslenski boltinn Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Fótbolti Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Enski boltinn Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Enski boltinn „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Íslenskt góðgæti með erlendu kryddi Sport „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ Fótbolti „Þetta var hræðilegt og 2025 verður sársaukafullt“ Formúla 1 Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Fjörutíu mínútna hlé eftir að peningi var kastað í dómara Fótbolti Fleiri fréttir Lewandowski frá næstu vikurnar og missir af stórleikjum Enn eitt jafnteflið hjá Lyngby Fimmtán ára bjargaði stigi fyrir Brøndby „Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Fjörutíu mínútna hlé eftir að peningi var kastað í dómara Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Sjá meira