Árið er 1999 og við erum stödd í Svíþjóð. Haldið er upp á tímamót; 25 ár eru liðin frá því ABBA vann Eurovision með Waterloo. Og í tilefni þess er auðvitað ákveðið að setja saman ABBA-coverband. Hljómsveit skipaða fjórum kornungum, sænskum hæfileikasprengjum.
Nafnið ABBA-Teens er valið á sveitina, einkar lýsandi nafn sem skömmu síðar var þó breytt í A*Teens. Og A*Teens enda á að fara sigurför um heiminn. Og nú, tuttugu og fimm árum eftir að sveitin var stofnuð, hefur einn meðlimanna búið sér líf í Garðabæ af öllum stöðum - og talar reiprennandi íslensku.
Amit Paul var fimmtán ára þegar hann var fenginn til liðs við A*Teens. Fyrsta lag þeirra, ábreiða af hinu ódauðlega ABBA-lagi Mamma Mia skaust beint á topp vinsældarlista í Svíþjóð og sat þar óslitið í átta vikur. Amit fer yfir ótrúlega ferilinn í Íslandi í dag; hljómsveitin hélt í tónleikaferðalag með Britney Spears, varð andlit Coca-Cola í Tælandi um hríð og sérstakar A*Teens dúkkur voru framleiddar svo eitthvað sé nefnt.
En hvernig endaði Amit á Íslandi? Áhugi hans á fjallaskíðum leiddi hann í skíðaferð til Grænlands fyrir um áratug, með örlagaríkri millilendingu á Íslandi þar sem hópurinn sat veðurtepptur. Þar kynntist hann konu sinni, Unni Ýrr Helgadóttur listakonu.
„Hún var í kringum vinina, við hittumst niðri í bæ. Og hún var bara: Þú getur ekki setið hér! Komdu í sund! Og ég sagði mjög snemma við hana: Þú ert konan í lífi mínu. Og hún var bara: Þú ert bilaður, það er eitthvað að. Og ég bara: Neinei sjáum til. Og eftir nokkur ár plataði ég hana í að koma til Svíþjóðar,“ lýsir Amit.
Fjölskyldan, Amit, Unnur og dætur þeirra tvær, flutti til Íslands fyrir um þremur árum. Amit segir lífið á Íslandi algjörlega frábært.
„Það er það besta sem ég hef gert [að flytja til Íslands]. Að komast á fjallaskíði, hlaupa og hjóla. Heiðmörk!,“ segir Amit.
Brot úr viðtali Íslands í dag við Amit má horfa á í spilaranum hér fyrir ofan. Þáttinn í heild má nálgast á streymisveitu Stöðvar 2. Hér fyrir neðan má svo finna atriði A*Teens í Melodifestivalen frá 3. febrúar og tónlistarmyndbandið við ABBA-ábreiðuna Mamma Mia.
A*Teens á Melodifestivalen 3. febrúar 2024:
Mamma Mia-A*Teens: