Telur sig eiga inni pening hjá KA og stefnir félaginu Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 26. febrúar 2024 18:16 Arnar Grétarsson er þjálfari Vals í dag. Vísir/Anton Brink Arnar Grétarsson, þjálfari Vals í Bestu deild karla, hefur stefnt fyrrverandi vinnuveitanda sínum KA vegna vangoldinna bónusgreiðslna. Málið verður tekið fyrir 1. mars næstkomandi í Héraðsdómi Norðurlands eystra.
Kristján Óli Sigurðsson, einn af þáttastjórnendum hlaðvarpsþáttarins Þungavigtarinnar, benti á þetta á X-síðu, áður Twitter, sinni. Heiðar Ásberg Atlason, lögmaður Arnars, staðfesti í viðtali við Fótbolti.net að Arnar telji sig eiga inni bónusgreiðslu þar sem hann stýrði liðinu nær allt tímabilið þegar það endaði í 3. sæti og tryggði sér þar með þátttöku í Evrópukeppni. pic.twitter.com/8TxR5mXlhK— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) February 26, 2024 Arnar þjálfaði KA frá 2020 til 2022. Haustið 2022 endaði KA í 3. sæti en Arnar kláraði ekki tímabilið með liðið þar sem hann hafði þegar samið við Val um að taka við félaginu að tímabilinu loknu. Í samningi Arnars var ákvæði um bónusgreiðslu ef KA kæmist í Evrópukeppni og telur Arnar sig eiga inni hluta af greiðslunni þar sem hann skildi við félagið í 2. sæti. Hallgrímur Jónasson tók við af Arnari og kláraði tímabilið áður en hann gerðist aðalþjálfari þess á síðustu leiktíð. Lærisveinar Arnars í Val taka á móti ÍA í 1. umferð Bestu deildarinnar þann 7. apríl næstkomandi. Fyrr þann sama dag mætast KA og HK á Akureyri.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild karla Valur KA Mest lesið Hafa verið þrettán ár af lygum Enski boltinn Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? Íslenski boltinn Laus frá Man. United og vaknar brosandi á hverjum morgni Fótbolti Fékk heilablóðfall stuttu eftir að hún skrifaði undir hjá Barcelona Fótbolti Barðist við tárin þegar hann kvaddi Íslenski boltinn Messi með sigurmarkið í sautján stiga frosti: „Ekki mannlegar aðstæður“ Fótbolti Fóturinn tekinn af körfuboltapabbanum kjaftfora Körfubolti „Þetta er einstakur strákur“ Íslenski boltinn Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig Íslenski boltinn Víkingar kæmust í 960 milljónir Fótbolti Fleiri fréttir „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð KR lánar Óðinn til ÍR Sjáðu fimm marka flengingu frá meisturunum Gylfi fyrirliði í jafntefli á Akranesi Víkingar með lægra tilboð en „grín“ í Gylfa Valur og Breiðablik í góðum gír í Lengjubikar kvenna Devine til Blika og má spila í kvöld Fimmtán milljón króna hagnaður hjá KSÍ FH safnaði yfir tveimur milljónum fyrir Píeta samtökin Grótta laus úr banni FIFA Sjá meira