„Stundin sem beðið er með eftirvæntingu á hverju ári, fyrsta loðna ársins komin í hús. Norska skipið Hargrun kom til okkar í gærkvöldi með um 1.100 tonn af fínustu loðnu úr Barentshafinu. Aflinn fékkst í fjórum köstum norður af Noregi,“ segir á heimasíðu Eskju.
Hlynur Ársælsson, rekstrarstjóri uppsjávarfrystihússins, sagði í samtali við fréttastofu að allur afli norskra skipa færi á uppboðsmarkað og Eskja hefði einfaldlega boðið í farminn og fengið.

Löng sigling var með aflann úr Barentshafi, um 950 sjómílur.
,,Aflinn er í fínu standi þrátt fyrir langa siglingu til Eskifjarðar. Vinnslan fer ágætlega af stað hjá okkur en smá hnökrar fylgja stundum þegar húsið hefur ekki verið keyrt í marga mánuði. En heilt yfir er þetta flott,“ segir Hlynur.
Hann segir hrognahlutfall loðnunnar milli 15 og 16 prósent og verði hún öll fryst til manneldis fyrir markaði í Asíu og Austur-Evrópu.

Að sögn Hlyns er von á öðru norsku loðnuskipi, Steinevik, til Eskifjarðar um hádegi á morgun með um 900 tonn. Eskja fái þannig um tvöþúsund tonn úr þessum tveimur skipum.
Á sama tíma bíður floti íslensku loðnuskipanna enn kvótalaus meðan sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar finna ekki nægilegt magn til að ráðleggja veiðar. Ljóst er að tíminn er að renna út núna þegar styttist í að loðnan hrygni og drepist. Loðnan hrygnir yfirleitt í febrúar og mars en hrygning gæti teygst fram í apríl.
Ekkert liggur enn fyrir hvort efnt verði til frekari loðnumælinga þennan veturinn, að sögn Guðmundar Óskarssonar fiskifræðings, sviðsstjóra uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar.

„Við erum annars í viðbragðstöðu og tökum við fréttum og könnum þær og metum, og þær koma með reglulegu millibili,“ segir Guðmundur.
„Það hafa verið að koma togarafréttir frá Vestfjarðamiðum sem við höfum verið að kanna betur með hjálp áhafnarinnar á Örfirisey. En það lítur út fyrir að vera að mestu leyti ungloðna þar og því ekki vesturganga hrygningarloðnu.
Þá voru fréttir af loðnutorfum á Papagrunni og Lónsbuktinni í morgun og í dag sem við erum að afla okkur betri upplýsinga um. En ekkert ennþá sem hefur gefið tilefni til að ræsa út Heimaey sem er klár í Eyjum ef þörf er á. Staðan er því óbreytt,“ segir fiskifræðingurinn.