Hátíðin hefur verið haldin degi fyrir Óskarsverðlaunahátíðina á hverju ári frá árinu 1980. Skipuleggjendur hennar hafa lýst henni sem „ljóta frænda Óskarsverðlaunanna“ og er tilgangur hennar að hæðast að þeim bíómyndum sem álitnar eru þær verstu sem komu út á liðnu ári.
Bíómyndin Expend4bles, í leikstjórn Sylvester Stallone, hlaut tvö verðlaun á hátíðinni. Leikkonan Megan Fox hlaut jafnmörg verðlaun.
„Sigurvegarar“ á Razzie-verðlaununum eru eftirfarandi:
Versta myndin
Winnie the Pooh: Blood and Honey
Versti leikari í aðalhlutverki
Jon Voight fyrir myndina Mercy
Versta leikkona í aðalhlutverki
Megan Fox fyrir myndina Johnny & Clyde
Versta leikkona í aukahlutverki
Megan Fox fyrir myndina Expend4bles
Versti leikari í aukahlutverki
Sylvester Stallone fyrir myndina Expend4bles
Versta parið í bíómynd
Bangsímon og Gríslingur fyrir myndina Winnie the Pooh: Blood and Honey
Worst remake, rip-off or sequel:
Versta endurgerðin, peningaplokkið (e. rip-off) eða framhaldsmyndin
Winnie the Pooh: Blood and Honey
Versti leikstjórinn
Rhys Frake-Waterfield fyrir myndina Winnie the Pooh: Blood and Honey
Versta handritið
Winnie the Pooh: Blood and Honey
Verðlaun fyrir endurheimta virðingu (e. redeemer)
Fran Drescher