„Eftir að hafa legið yfir þessu, enda sannarlega hvorki einföld né auðveld ákvörðun, af svo mörgum ástæðum, þá komumst við að þeirri niðurstöðu að það væri ekki annað hægt en að svara kalli þjóðarinnar í ljósi þess að Hera vann þennan sigur í kosningunum, og í ljósi þess að Hera hefur lýst því yfir að hún hafi fullan hug á því að vera með í keppninni og fylgja eftir þessum sigri. Þannig að það varð bara ofan á, og mat okkar að samþykkja þátttöku í keppninni,“ segir Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins. Rætt var við hann í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.
Hann segir, líkt og ítarlega hefur verið fjallað um, að atkvæðagreiðsla á úrslitakvöldi Söngvakeppni sjónvarpsins hafi verið gölluð. Hera Björk stóð uppi sem sigurvegari með lagið Scared of Heights, en hún hafði betur í úrslitaeinvígi gegn Bashar Murad með lagið Wild West.
„Sem við tökum sannarlega ekki léttvægt. Við hlustum á þær gagnrýnisraddir sem eru á sveimi,“ segir Skarphéðinn. Búið sé að rýna ítarlega í málið á marga vegu, en sú skoðun hafi verið eitt af því sem olli því að ákvörðun um þátttöku Íslands dróst. Í dag var síðasti dagurinn sem sjónvarpsstöðvar Evrópu höfðu til að staðfesta þátttöku í Eurovision.
Afstaða Ásdísar ráði miklu
Skarphéðinn segir Heru staðráðna í að fylgja eftir sigri sínum í Söngvakeppninni með því að flytja lagið í Malmö. Einn höfunda lags Heru, Ásdís María Viðarsdóttir, hefur lýst því yfir að hún fari ekki með til Malmö til að fylgja laginu eftir í Eurovision.
Skarphéðinn segir Ásdísi þó hafa lýst því yfir að hún standi með Heru og setji sig ekki upp á móti því að Hera fari út.
„Það ræður heilmiklu um ákvörðun okkar, að Ásdís styðji Heru þó að hún sjálf ætli sér ekki að vera með í Malmö. Við virðum þá ákvörðun Ásdísar en erum líka þakklát henni fyrir að styðja svona vel við bakið á Heru.“

Mikil ólga
Skarphéðinn segir málið hafa valdið mikilli ólgu og margir orðið fyrir ónæði vegna þess, en mismiklu þó.
„Þeir hafa kannski orðið fyrir mestu ónæði sem hafa verið hvað sýnilegastir, þátttakendur, kynnar og helstu aðstandendur. Það hefur sannarlega ekki verið sérstaklega þægilegt að horfa upp á það og fylgjast með því.“
Skarphéðinn vísar til tilkynningar frá RÚV um þátttöku Íslands í Eurovision sem send var út síðdegis í dag, en þar er haft eftir Heru að umræðan í kjölfar Söngvakeppninnar hryggi hana. Bæði hvernig fólk hafi talað um hana og henni gerðar upp annarlegar skoðanir og meiningar, en ekki síður hvernig margir hafi leyft sér að tala um Bashar.
Vonar að þjóðin styðji við bakið á Heru
Skarphéðinn segir fulltrúa RÚV vona að nú geti þeir farið að einbeita sér að því sem Eurovision eigi að snúast um.
„Þetta er sönglagakeppni sem er til þess gerð að skemmta áhorfendum, skemmta íbúum Evrópu, og við erum að vonast til þess að við getum farið að einbeita okkur að því. Þessum jákvæða þætti sem á að vera á þessari Eurovision-keppni, og raun og veru Söngvakeppninni líka. Þannig að við vonumst til að eftir að ákvörðun hefur legið fyrir að þjóðin flykki sér að baki Heru og styðji hana í einu og öllu, enda frábær söngkona og frábær fulltrúi okkar í þessari keppni.“