Hlustendaverðlaunin 2024 voru afhent við hátíðlega athöfn í Gamla bíói síðastliðið fimmtudagskvöld.
Stórstjarnan Laufey hlaut verðlaun sem söngkona ársins og fyrir plötu ársins, Bewitched. Patrik Atlason var valinn nýliði ársins og hlaut verðlaun fyrir lag ársins. Drengjasveitin Iceguys voru útnefndir flytjendur ársins og myndband þeirra við lagið Krumla var valið myndband ársins.
Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Jón Jónsson tónlistarmaður tók fagnandi á móti verðlaununum ásamt IceGuys-meðlimum og hélt svo af stað til Marokkó í langþráð frí með fjölskyldunni.

Tískudrottningin Elísabet Gunnars drakk í sig franska menningu í París ásamt eiginmanni sínum Gunnari Steini Jónssyni um helgina.
Birgitta Líf Björnsdóttir og Enok Jónsson eru stödd í fríi á Spáni, rúmum mánuði eftir fæðingu frumburðarins. Sonur parsins kom í heiminn 8. febrúar síðastliðinn.
Fanney Ingvarsdóttir, markaðsfulltrúi Bioeffect og fyrrverandi fegurðardrottning nýtur veðurblíðunnar í austurísku ölpunum á skíðum ásamt fjölskyldu sinni og tengdafjölskyldu.
Tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð fagnaði nýrri plötu, Frá mér til þín, með hlustunarpartýi á veitingastaðnum Önnu Jónu síðastliðinn fimmtudag.
Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar Halldórsson fagnaði 33 ára afmæli sínu á föstdaginn með útgáfu á nýrri plötu, þrjátíú og þrír.
Tónlistarkonan Bríet Isis Elfar tók fagnandi á móti 25. aldursárinu síðastiðinn föstudag.
Helgi Ómarsson fagnaði hefðbundnum og sólríkum föstudegi.
Annie Mist Þórisdóttir CrossFit-meistari á von á sínu öðru barni í byrjun maí. Hún lætur óléttuna ekki stoppa sig og stundar íþróttina af krafti, fer í handahlaup og stendur á höndum eins og ekkert sé eðlilegra.
Camilla Rut Rúnarsdóttir útskrifaðist sem stafrænn markaðssérfræðingur frá markaðsstofunni Sahara í vikunni.
Ástrós Traustadóttir LXS-skvísa og dansari reyndi að pósa fyrir myndatöku í hvassviðrinu um helgina.
Gummi kíró tekur fagnandi á móti vorinu sem er farið að gera vart við sig.
Leikarinn og hlaðvarpsstjórnandinn Aron Már Ólafsson birti mynd af rassinum á sér og tónlistarkonunni Bríeti.