Það var fullur salur í Smárabíó í gær.Vísir/Hulda Margrét
Goðsagnir úr heimi knattspyrnunnar í bland við þjálfara, leikmenn og bransastjörnur úr auglýsingageiranum sameinuðust í Smárabíó í gær þar sem árleg auglýsing fyrir Bestu-deildirnar var frumsýnd. Góð stemning var á sýningunni líkt og myndirnar bera með sér.
Eins og áður er það fyrrverandi landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson sem leikstýrir auglýsingunni sem vakið hefur mikla athygli. Besta-deild karla hefst laugardaginn 6. apríl með leik Íslandsmeistara Víkings og Stjörnunnar.
Besta-deild kvenna hefst síðan sunnudaginn 21. apríl með tveimur leikjum. Líkt og síðustu ár verða deildirnar í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Þjálfararnir Arnar Grétarsson og Ólafur H. Kristjánsson mættu ferskir.Vísir/Hulda MargrétMolly Swift, Andrea Rut Bjarnadóttir, Álfhildur Rósa Kjartansdóttir og Sóley María Steinarsdóttir leikmenn Þróttar, utan Andreu sem er leikmaður Breiðabliks.Vísir/Hulda MargrétNadia Atladóttir, Emma Steinsen og Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir ætla sér stóra hluti í sumar.Vísir/Hulda MargrétNik Chamberlain þjálfari kvennaliðs Breiðabliks.Vísir/Hulda MargrétKarl Daníel Magnússon Breiðabliki lét sig ekki vanta.Vísir/Hulda MargrétJohn Andrews spreytir sig sem þjálfari í efstu deild kvenna í sumar með Víkingi. Hér er hann með Helga Guðjónssyni markahrók hjá Víkingum.Vísir/Hulda MargrétFólk hlustaði af athygli á sýn framleiðenda.Vísir/Hulda MargrétBjörn Þór Ingason markaðsstjóri ÍTF.Vísir/Hulda MargrétArnar Gunnlaugsson, Rúnar Páll Sigmundsson, Olgeir Sigurgeirsson og Jón Þór Hauksson. Rándýrt þjálfarateymi.Vísir/Hulda MargrétValdimar Svavarsson formaður FH ásamt Hirti Þór Steindórssyni og Leifi Andri Leifssyni fyrirliða HK. Vísir/Hulda MargrétAron Bjarna ásamt Viktori Jónssyni markahrók.Vísir/Hulda MargrétHeimir Gunnlaugsson og Þórir Hákonarson.Vísir/Hulda MargrétJón Gunnar Geirdal, Breki Logason með vini í bransaspjalli. Vísir/Hulda MargrétGústi B í geggjuðum félagsskap þeirra Adams Ægis Pálssonar og Nadiu Atladóttur.Vísir/Hulda MargrétBenedikt, Heimir og Flosi voru spenntir.Vísir/Hulda MargrétÓlafur Helgi Kristjánsson, stundum nefndur prófessorinn, var í banastuði.Vísir/Hulda MargrétAron Bjarnason ásamt fjölskyldu sinni.Vísir/Hulda MargrétHaukur Hinriksson, lögfræðingur hjá KSÍ, ásamt Daða Guðmundssyni rekstrarstjóra knattspyrnudeildar Fram.Vísir/Hulda MargrétHalldór Árnason þjálfari karlaliðs Breiðabliks. Flosi Eiríksson leggur við hlustir.Vísir/Hulda Margrét